16. apríl 2025
Greiðslur húsnæðisbóta og sértæks húsnæðisstuðnings í janúar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS greiddi tæplega 870 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda fyrsta febrúar 2024, en þar af voru 120 milljónir greiddar til stuðnings fyrir Grindvíkinga. Um þrjár tegundir af stuðningi er að ræða, sértækan stuðning fyrir Grindvíkinga, húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir Kópavog og Skagafjörð.
Sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ
Framkvæmd sértæks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga hefur verið á ábyrgð HMS frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega.
Alls voru 572 virkar umsóknir sem fengu greiðslu vegna janúarmánaðar, og nam greiðslan 106.046.368 krónum. Alls voru greiddar 120.371.243 krónur í janúar í 679 greiðslum, en mismunurinn skýrist af greiðslu áunnina réttinda fyrri mánaða.
Húsnæðisbætur
Húsnæðisbótum er ætlað að styðja tekju- og eignalága leigjendur vegna leigu íbúðarhúsnæðis og eru þær greiddar mánaðarlega. Greiðslur húsnæðisbóta í janúar voru um 17 þúsund talsins og námu alls 719.097.589 króna. Þar af voru greiddar 702.805.519 krónur til 16.671 umsækjenda vegna leigu í jánúarmánuði.
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog er framkvæmd af HMS sem hluti tilraunaverkefnis stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðisskostnaði.
Greiddar voru 27.497.870 krónur vegna 1.027 umsókna í Kópavogi og 1.566.519 krónur vegna 82 umsókna í Skagafirði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS