22. maí 2025
4. júlí 2023
Gott aðgengi í ferðaþjónustu
Milljónir manna um víða veröld hafa áhuga á því að ferðast, hafa bæði tíma og fjármuni til að gera það en halda sig heima vegna þess að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða er víða ábótavant.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) óskar forsvarsmönnum og starfsfólki Sky Lagoon, Baklands að Lágafelli, Lofts Hostels og Dals Hostels innilega til hamingju með að vera fyrst fyrirtækja til að hljóta merki Ferðamálastofu um Gott aðgengi í ferðaþjónustu. Gott aðgengi að upplýsingum, þjónustu og mannvirkjum kemur öllum sem ferðast um landið til góða og því hvetur HMS alla sem koma að ferðaþjónustu til að kynna sér verkefnið Gott aðgengi í ferðaþjónustu.
Gott aðgengi í ferðaþjónustu
Fyrstu fyrirtækin fá merki sem aðgengileg fyrirtæki fyrir fatlaða.