21. maí 2026

Gólf í votrýmum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS hefur endurvakið útgáfu á Rb-blöðunum, sem eru tækni- og leiðbeiningablöð um mannvirkjagerð. Viðfangsefni Rb-blaðanna hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina. Í tengslum við útgáfu nýrra blaða endurútgefur HMS, í lok hvers mánaðar, eldri blöð sem fjalla um málefni líðandi stundar.

Rb-blað mánaðarins fjallar um gólf í votrýmum.

Rb-blað mánaðarins

Rb-blaðið Gólf í votrýmum var gefið út í júlí 2017 af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Höfundur blaðsins er Jón Sigurjónsson.

Blaðið fjallar um gólf í baðherbergjum og öðrum votrýmum. Fyrst og fremst er fjallað um íbúðarhús en ráðgjöfin gildir einnig um allar gerðir votrýma þar sem búast má við vatnságangi á gólfið. Reynt er að lýsa raunhæfum lausnum sem gefa góða vatnsvörn fyrir gólfið og þveranir þess auk tengingar við veggfletina.

Votrými eru mikilvæg rými en valda oft vandræðum og skemmdum og í votrýmunum er notað meira en helmingur neysluvatns hverrar íbúðar. Baðherbergi eru rými sem krefjast vatnsþéttra laga á veggjum og gólfi og eru auk þess einu vistarverurnar sem verða fyrir verulegu gufuálagi. Þvottaherbergi og salerni eru rými sem krefjast vatnsþéttra gólfa, sem ná skulu upp á aðlæga veggi og mynda þannig vatnsþétta skál. Hanna skal votrými þannig að hætta á vatnsleka sé lágmörkuð. Til þess skal nota alla aðgengilega kunnáttu, t.d. þekktar deililausnir, viðurkennd og vottuð byggingarefni auk handbóka og staðla.

Öll útgefin Rb-leiðbeiningarblöð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS