19. júní 2026

Fyrstu kaupendur eru líklegri en aðrir einstaklingar til að kaupa nýjar íbúðir

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Um 16 prósent kaupsamninga í apríl vörðuðu nýjar íbúðir
  • Hlutdeildarlán stuðla að því að fyrstu kaupendur kaupi nýjar íbúðir
  • Fyrstu kaupendur hafa staðið að baki rúmlega 40 prósent kaupsamninga um nýjar íbúðir á árinu

Alls 765 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði var þinglýst í apríl, þar af um 16 prósent um nýjar íbúðir. Hlutfallið mældist 20 prósent meðal fyrstu kaupenda í apríl sem hafa verið líklegri til að kaupa nýjar íbúðir en aðrir einstaklingar undanfarin misseri.

Þetta er meðal þess sem fjallað er um í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir júnímánuð sem gefin var út í gær. Upptöku af kynningu á helstu atriðum skýrslunnar má nálgast í spilaranum hér að neðan.

Um 16 pró­sent kaup­samn­inga í apr­íl voru um nýj­ar íbúð­ir

Rétt rúmlega 16 prósent þinglýstra kaupsamninga í apríl vörðuðu nýjar íbúðir. Hlutfall nýrra íbúða af seldum íbúðum hækkaði jafnt og þétt frá 2016 fram að ársbyrjun 2021 þegar um fjórði hver kaupsamningur varðaði nýja íbúð. Á þeim tíma voru vextir í sögulegu lágmarki og fasteignamarkaðurinn fór á flug. Samhliða gekk hratt á birgðir af nýjum íbúðum og framboð þeirra þurrkaðist nánast út í ársbyrjun 2022.

Eftir að vextir tóku að hækka á ný frá og með miðju ári 2021 fram að hausti 2023 fjölgaði nýjum íbúðum til sölu umtalsvert og hlutfall nýrra íbúða af seldum lækkaði samhliða. Hlutfallið tók þó stökk á síðari hluta árs 2023 og mældist rúmlega 27 prósent frá desember 2023 fram í febrúar 2024, en lækkaði svo aftur um mitt ár 2024.

Fyrstu kaup­end­ur eru lík­legri til að kaupa nýj­ar íbúð­ir en aðr­ir ein­stak­ling­ar

Stökkið skýrist að mestu leyti af háu hlutfalli kaupsamninga um nýjar íbúðir meðal lögaðila og fyrstu kaupenda, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan sem sýnir þriggja mánaða meðaltal af hlutfallinu eftir tegund kaupenda. Hvað varðar fyrstu kaupendur má geta þess að í júní 2023 voru hámarksverð íbúða sem gátu hlotið hlutdeildarlán hækkuð auk þess sem tekjumörk úrræðisins voru uppfærð. Breytingarnar leiddu til aukinnar eftirspurnar eftir hlutdeildarlánum sem eingöngu eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum. 

Um það bil 20 prósent kaupsamninga um fyrstu fasteignakaup í apríl vörðuðu nýjar íbúðir, en hlutfallið hefur farið hækkandi undanfarna mánuði líkt og sjá má á myndinni hér að ofan. Hlutfallið hefur jafnframt verið hærra meðal fyrstu kaupenda heldur en annarra kaupenda að mestu leyti frá miðju ári 2023 en fram að árslokum 2020 hafði það legið nokkuð lægra meðal fyrstu kaupenda. Hlutdeildarlánin voru einmitt kynnt til sögunnar í lok árs 2020 og hafa síðan þá stuðlað að kaupum fyrstu kaupenda á nýjum íbúðum.

Hlut­deild fyrstu kaup­enda í kaup­samn­ing­um um nýj­ar íbúð­ir hef­ur far­ið vax­andi und­an­far­inn ára­tug

Þrátt fyrir að hlutfall kaupsamninga um nýjar íbúðir hafi verið lægst meðal einstaklinga sem eru ekki að kaupa sína fyrstu íbúð hafa þeir verið kaupendur í stærstum hluta kaupsamninga um nýjar íbúðir undanfarinn áratug. Á síðustu árum hefur hlutdeild fyrstu kaupenda þó farið vaxandi á meðan hlutdeild annarra kaupenda hefur farið lækkandi. Þetta má sjá á myndinni hér að neðan sem sýnir hvernig kaupsamningar um nýjar íbúðir hafa dreifst á milli fyrstu kaupenda, annarra kaupenda og lögaðila undanfarin ár.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS