8. maí 2025
2. júlí 2021
Fyrstu íbúðirnar undir merkjum hagkvæms húsnæðis afhentar í gær
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Í gær voru afhentar fyrstu íbúðirnar á vegum Þorpsins í Gufunesi, sem er hluti af verkefni Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði. Verkefnið miðar að því að hjálpa ungu fólki að eignast eigin fasteign. Íbúðirnar í Gufunesi eru fyrstu íbúðirnar sem eru afhentar undir formerkjum verkefnisins en áætlað er að byggja yfir 600 hagkvæmar íbúðir í Reykjavík. Í gær afhenti Þorpið 45 íbúðir en áætlað er að byggja þarna 137 íbúðir.

Hlutdeildarlán sniðin fyrir Hagkvæmt húsnæðiNýju íbúðirnar í Gufunesi falla vel að skilyrðum fyrir hluteildarlán og hafa nú þegar verið samþykkt 36 hlutdeildarlán fyrir íbúðakaupum á þessu svæði. Lög um hlutdeildarlán voru samþykkt í nóvember 2020 en þeim er ætlað að hjálpa fyrstu kaupendum undir ákveðnum tekjumörkum að brúa bilið við fasteignakaup. Lántaki þarf einungis að vera með eigið fé sem nemur 5% af kaupverði íbúðarinnar og fær síðan hlutdeildarlán fyrir allt að 20% á móti 75% láni frá lánastofnun. Frekari upplýsingar um hlutdeildarlán er hægt að finna á eftirfarandi vefslóð: http://hlutdeildarlan.is/.
HMS fagnar verkefni Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði enda fer það vel með skilyrðum um hlutdeildarlán og eru til þess fallin að auðvelda ungu fólki að kaupa sína fyrstu fasteign. Það sést vel á þeim fjölda hlutdeildarlána sem hafa nú þegar verið samþykkt í þessu verkefni. Frá því að opnað var fyrir umsóknir um hlutdeildarlánin hafa 395 umsóknir verið samþykktar. Þær skiptast í 231 umsókn á höfuðborgarsvæðinu, 126 í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og 38 á landsbyggðinni.
Myndin er fengin af vef Þorpsins
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS