4. október 2024
23. september 2024
Fundur um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og Samtök iðnaðarins (SI) boða til fundar um stöðu íbúðauppbyggingar fyrir landið allt þriðjudaginn 24. september. Þá mun HMS einnig gefa út skýrslu um niðurstöður talningar á íbúðum í byggingu.
Á fundinum verða kynntar niðurstöður talningarinnar og mun SI fara yfir hvernig staðan á húsnæðismarkaði horfir við byggingariðnaðinum.
Dagskrá fundar:
- Staða íbúðauppbyggingar: Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri húsnæðissviðs HMS
- Byggjum í takt við þarfir: Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
Fundurinn hefst kl. 12:00 í húsnæði HMS í Borgartúni. Léttar veitingar verða í boði fyrir fundargesti.
Fundinum er einnig streymt á hms.is/streymi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS