20. júní 2025
23. júní 2025
Fundur um bætta framkvæmd brunabótamats og útgáfu vegvísis
HMS boðar til opins fundar fimmtudaginn 26. júní klukkan 9:00. Tilefni fundarins er útgáfa Vegvísis að brunabótamati 2025 - bætt framkvæmd brunabótamats. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS í Borgartúni 21 en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á hms.is/streymi.
HMS tók yfir málaflokk brunabótamats árið 2022 og er tilgangur Vegvísisins um bætt brunabótamat að fara yfir þá reynslu og þekkingu sem HMS hefur öðlast, stöðu brunabótamats á Íslandi, samfélagslegt mikilvægi þess, lærdóminn af endurmati brunabótamats í Grindavík og áhrif brunabótamats á tekjur ríkissjóðs.
Auk HMS munu Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS vera með erindi.
Dagskrá
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
- Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteigna HMS
- Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS
Fundarstjóri: Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS