30. júní 2020

Funduðu um stöðu eftirlits og brunavarna vegna brunans á Bræðraborgarstíg

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) fundaði í dag með slökkviliðsstjóranum á höfuðborgarsvæðinu Jóni Viðari Matthíassyni og Nikulási Úlfari Mássyni, byggingarfulltrúa í Reykjavík þar sem farið var yfir stöðu brunaeftirlits og brunavarna. Boðað var til fundarins í kjölfar brunans á Bræðraborgarstíg 1 í síðustu viku þar sem þrír íbúar létust og tveir slösuðust alvarlega. Grunur leikur á að brunavörnum í húsinu hafi verið ábótavant en þar bjó fjöldi erlends verkafólks og hefur vakið athygli að í húsnæðinu voru alls 73 skráðir með lögheimili. 

Samhljómur var á fundinum um mikilvægi brunavarna og að fullt tilefni sé til að vinna saman að frekari úrbótum á regluverki og verklagi. Þá var rætt að fyrirhuguð skráning leigusamninga væri mikilvægt skref og samkeyrsla leiguskrár við lögheimilisskráningar. Einnig voru ræddar auknar heimildir til slökkviliða og byggingafulltrúa við eftirlit og aukið samstarf við tryggingafélög. Þá kom fram að nýta mætti árangur í öðrum málaflokkum líkt og umferðaröryggi þar sem gengið hefur vel að draga úr alvarlegum slysum með samstilltu átaki. Einnig var rætt að leggja þyrfti áherslu á að byggingaröryggisgjaldið sem innheimt er af ríkinu skili sér til brunavarna.

Rannsókn HMS á brunanum á Bræðraborgarstíg er í fullum gangi og er leidd af Davíð Snorrasyni, yfirmanni brunaeftirlits hjá stofnuninni. Markmið rannsóknarinnar er að leiða í ljós hvaða lærdóm megi draga og hvort nauðsynlegt sé að breyta regluverki en niðurstöður rannsóknarinnar gætu legið fyrir síðar á árinu. Samhliða hefur HMS til skoðunar aðrar aðgerðir í, meðal annars hvort hindra megi að svo margir hafi skráð lögheimili á einum stað, til dæmis með bættri skráningu leiguhúsnæðis. Með tilkomu leiguskrár HMS, sem ákvæði er um í frumvarpi að breytingu á húsaleigulögum sem lagt hefur verið fram á Alþingi, verður til ný leið til að safna upplýsingum og koma auga á frávik. Eins og staðan er í dag eru stjórnvöld eingöngu með yfirsýn yfir þann hluta leigumarkaðarins sem er á höndum sveitarfélaga eða þegar til staðar eru þinglýstir leigusamningar, sem er því miður yfirleitt ekki raunin í tilfelli herbergjaleigu til erlends verkafólks.

Á fundinum kom fram að næsta skref í kjölfar hans sé að hefja vinnuna og fá fleiri aðila að borðinu til að ræða úrbætur. Sérstaklega er horft til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og félagsmálaráðuneytisins en Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra lýsti því yfir í dag að hann vilji skoða lagabreytingar til að efla brunaeftirlit. Ráðherra fól HMS í lok maímánuðar síðastliðnum að fara í sérstakt átak á sviði brunamála. Í átakinu felst meðal annars að fjölgað verður sérfræðingum sem sinna þessum málaflokki sérstaklega hjá stofnuninni.

---

Sjá frétt HMS um átak í brunavörnum frá 28. maí síðastliðnum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS