20. mars 2026
20. mars 2026
Framboð á íbúðamarkaði hefur aukist mikið frá áramótum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðum til sölu hefur fjölgað verulega frá áramótum
- Framboðsaukningu frá áramótum má rekja til fjölgunar bæði nýrra og annarra íbúða til sölu
- Framboð íbúða til sölu er helmingi meira nú en það var árið 2020
Á sama tíma og dregið hefur úr verðþrýstingi á íbúðamarkaði hefur framboð íbúða til sölu aukist mikið undanfarna mánuði. Framboðsaukningin nær til landsins alls og skýrist af fjölgun bæði nýrra og annarra íbúða til sölu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjustu mánaðarskýrslu HMS fyrir marsmánuð, sem nálgast má hér.
Bæði nýjum og öðrum íbúðum til sölu hefur fjölgað frá áramótum
Í byrjun janúar voru um 5.100 íbúðir til sölu á landinu öllu, en í byrjun mars voru þær orðnar rúmlega 6.000. Framboð hefur því aukist um tæp 18% frá áramótum.
Rétt er að geta þess að undanfarin ár hefur framboð íbúða til sölu dregist nokkuð saman þegar líður að jólum og áramótum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, en aukist á nýjan leik í upphafi nýs árs. Þrátt fyrir það er framboð íbúða til sölu tæplega 12% meira í dag en þegar mest lét síðasta haust.
Á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess má rekja framboðsaukningu undanfarinna mánaða til fjölgunar bæði nýrra og eldri íbúða til sölu. Á landsbyggðinni skýrist framboðsaukningin hins vegar að langmestu leyti af fjölgun nýrra íbúða til sölu sem tengjast margar hverjar tveimur nýjum fjölbýlum á Akureyri.
Óseldar íbúðir voru mun færri í byrjun faraldursins
Áður en heimsfaraldurinn skall á af fullum þunga hér á landi hafði framboð íbúða til sölu náð hámarki um mitt ár 2020. Stuttu seinna tók markaðurinn á flug, sölutími styttist verulega og framboð skrapp saman á stuttum tíma. Um mitt ár 2020 voru um 4 þúsund íbúðir til sölu á landinu öllu, en sem fyrr segir eru þær 6 þúsund í dag. Það eru því um helmingi fleiri íbúðir til sölu í dag en þegar mest lét árið 2020.
Framboð íbúða til sölu hefur aukist sérstaklega mikið á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess á undanförnum árum. Framboð íbúða til sölu er um 70% meira á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess í dag samanborið við mitt ár 2020. Annars staðar á landsbyggðinni hefur framboð hins vegar nýlega aukist upp fyrir það sem var um mitt ár 2020.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





