17. apríl 2026
17. apríl 2026
Frágangur eldhúsa
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS hefur endurvakið útgáfu á Rb-blöðunum, sem eru tækni- og leiðbeiningablöð um mannvirkjagerð. Viðfangsefni Rb-blaðanna hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina. Í tengslum við útgáfu nýrra blaða endurútgefur HMS, í lok hvers mánaðar, eldri blöð sem fjalla um málefni líðandi stundar.
Rb-blað mánaðarins fjallar um frágang eldhúsa.
Rb-blað mánaðarins
Rb-blaðið Frágangur eldhúsa – m.t.t. vatnstjóna var gefið út í maí 2017 af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Höfundur blaðsins er Jón Sigurjónsson.
Frágangur eldhúsa, í ljósi þess að tækjabúnaður í eldhúsum hefur sífellt orðið meiri og flóknari, krefst mikillar varúðar og skipulagningar, sérstaklega ef takmarka á eða koma í veg fyrir vatnstjón. Sem dæmi verða 70% af vatnstjónum í eldhúsum við eða á svæðinu við eldhúsvaskinn.
Lengi hefur vantað skýrar frágangsdeilur við frágang tækjabúnaðar í eldhúsum til að komast hjá hvimleiðum og dýrum vatnslekum. Einkum er þessi frágangur viðkvæmur í timburhúsum. Í Rb-blaðinu er reynt að bæta úr þeirri þörf og draga upp skýrar og öruggar frágangsdeililausnir. Reynt er að hafa deililausnir þannig að hugsanlegur vatnsleki verði fljótt sýnilegur og valdi þar með sem allra minnstu tjóni.
Skipulagning íbúðarhúsa í dag er með þeim hætti að eldhús og stofa eru oft eitt stórt alrými, sem einnig kallar á öruggar, smekklegar og vel útfærðar deililausnir.
Öll útgefin Rb-leiðbeiningarblöð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




