13. september 2022

Ný brunavarnaáætlun undirrituð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Slökkvilið Grindavíkur 2022 - 2026

Föstudaginn 9. september sl. var ný brunavarnaáætlun fyrir starfssvæði Slökkviliðs Grindavíkur samþykkt og undirrituð af forstjóra HMS, slökkviliðsstjóra Grindavíkur og sveitastjóra Grindavíkur.

 

Á síðustu mánuðum hefur HMS unnið markvisst að því að styðja slökkviliðin í landinu við gerð brunavarnaáætlana og er gaman að segja frá því að nú eru 19 slökkvilið í landinu með gilda áætlun eða 59% af slökkviliðum landsins.

 

Markmið brunavarnaáætlunar er  að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því eru falin samkvæmt lögum.. Brunavarnaáætlun leggur grunninn að gæðastjórnun og úttekt á starfsemi slökkviliða fyrir þá aðila sem bera ábyrgð á brunavörnum í hverju sveitarfélagi. Áætlunin auðveldar einnig íbúum sveitarfélagsins að fá upplýsingar um veitta þjónustu, skipulag slökkviliðs og markmið með rekstri þess í sveitarfélaginu.

 

 

HMS óskar Slökkviliði Grindavíkur og íbúum sveitarfélagsins til hamingju með áfangann.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS