29. apríl 2021

Forstjóri HMS tekur undir áhyggjur Seðlabankastjóra

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Hermann Jónasson, forstjóri HMS, fagnar því að Seðlabankinn vilji stuðla að breytingum á því hvernig upplýsingum um fasteigna- og byggingamarkaðinn er safnað og miðlað hér á landi en Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, lýsti á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær yfir áhyggjum sínum af skorti á rauntímagögnum til að meta stöðu fasteignamarkaðarins. Hvatti Ásgeir til þess að settir yrðu fjármunir í að tryggja aðgang almennings og opinberra aðila að gögnum sem sagt geta til um hvenær vænlegt sé að fara í framkvæmdir eða grípa til ákveðinna aðgerða. Tilefni fundarins var kynning á nýrri fjármálastöðugleikaskýrslu bankans. Gögn sem helst er stuðst við í dag, til að meta stöðu og horfur á fasteignamarkaði, endurspegla oft ekki raunverulega stöðu húsnæðisuppbyggingar eða væntanlegs framboðs inn á markaðinn. 

HMS hefur óskað eftir fundi með Seðlabankanum til að ræða betur hvernig stofnanirnar geti unnið saman að því markmiði að auka aðgengi að rauntímaupplýsingum.

Hermann segir mikilvægt að þeir aðilar sem mesta ábyrgð bera gagnvart stefnumótun og efnahagsstjórn hins opinbera taki höndum saman í þessum málaflokki. „Það er spenna á fasteignamarkaði og á sama tíma óvissa um framboð húsnæðis á næstu misserum. Áreiðanlegar upplýsingar eru lykill til að draga úr verðsveiflum. Með þeim hafa framkvæmdaaðilar og lánveitendur fastara land undir fótum þegar teknar eru ákvarðanir um uppbyggingu. Sama má segja um stjórnvöld, hvort sem það er ríkið eða sveitarfélögin. Þessir aðilar þurfa áreiðanlegar upplýsingar til að gera langtímaáætlanir og einnig til að meta þörf á inngripum.“

Ein af helstu tillögum sérstaks átakshóps ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum, sem skilaði niðurstöðum sínum árið 2019, var að samstarf opinberra aðila yrði aukið og aðgengi að upplýsingum um húsnæðismarkaðinn yrði bætt. 

Tillögurnar má finna í heild sinni hér.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS