13. júní 2025
12. júní 2025
Fleiri íbúðir í færri verkefnum: Hlutfall stórframkvæmda hátt
Samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu eru nú samtals 6.298 íbúðir skráðar í byggingu um allt land. Þá hafa einnig verið gefin út byggingarleyfi eða skráð samþykkt byggingaráform fyrir 751 íbúðir, en framkvæmdir við þær eru ekki hafnar.
Það sem af er ári hefur verið lokið við byggingu á 1.288 íbúðum og þar af 1.235 nýjum íbúðum. Af þeim eru 60% íbúðanna á höfuðborgarsvæðinu, 6% á Norðurlandi eystra og um 18% á Suðurlandi. Til samanburðar hafði á sama tíma í fyrra verið lokið við 1.291 íbúðir, sem er aðeins þremur fleiri en í ár.
Fimmta hver íbúð sem nú er í byggingu tilheyrir stórverkefni
Fimmta hver íbúð sem nú er í byggingu tilheyrir stórframkvæmd með yfir 70 íbúðir. Slík verkefni standa nú undir álíka mörgum íbúðum og öll einbýlis- og sérbýlaverkefni, sem endurspeglar breyttar áherslur í uppbyggingu og hátt vægi stærri fjölbýlishúsa.
Verkefni með 10-29 íbúðir eru þó algengust og ná verkefni af þeirri stærð yfir rúmlega 2.100 íbúðir. Á sama tíma bera meðalstór verkefni, 30 til 69 íbúðir, minna af heildaruppbyggingunni. Þetta bendir til aukins þéttleika og stærri eininga í nýbyggingum, einkum á svæðum þar sem byggingarland er af skornum skammti og þéttingarstefna ræður ferðinni.
Á höfuðborgarsvæðinu sést þessi þróun til að mynda skýrt, þar tilheyrir um þriðjungur allra íbúða í byggingu verkefni sem er með meira en 70 íbúðir í byggingu. Flestar íbúðir eru þó í verkefnum með 10–29 íbúðir, sem telja um 40% allra nýbygginga. Einbýlis- og sérbýlisverkefni ná hins vegar aðeins til um 8% íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu.
Á höfuðborgarsvæðinu eru alls 3.808 íbúðir í byggingu um þessar mundir, sem er um 60% af heildarfjölda. Þetta er lægra hlutfall en síðustu ár, þegar um 70% nýbygginga hafa að jafnaði verið á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavík stendur undir stærstum hluta uppbyggingarinnar, með um 46% íbúða, en Hafnarfjörður fylgir fast á eftir með um 26% íbúða. Í Garðabæ og Kópavogi eru samanlagt ríflega 25% allra íbúða í byggingu.