1. febrúar 2024

Fjölgun íbúða fer að mestu til lögaðila og stærri íbúðaeigenda

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Íbúðum í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð fjölgaði um rúmlega 2.000 á síðasta ári og hefur fjölgunin ekki verið jafnmikil frá árinu 2010. Þetta kemur fram í upplýsingum sem HMS hefur unnið úr fasteignaskrá.

Samkvæmt tölunum hefur verulega dregið úr fjölgun íbúða í eigu einstaklinga sem eiga aðeins eina íbúð, en þeim fjölgaði um rúmlega 1.000 í fyrra. Til samanburðar fjölgaði íbúðum með sams konar eignarhald um 1.300 árið 2022, um 2.400 árið 2021 og um 2.800 árið 2020.

Fjölgun íbúða í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð hefur hins vegar aukist töluvert á síðustu tveimur árum, en slíkum íbúðum fjölgaði um 2.300 í fyrra, miðað við 1.600 íbúða fjölgun árið 2022 og 800 íbúða fjölgun árið 2021.

Myndin hér að neðan sýnir fjölgun íbúða eftir eignarhaldi, en samkvæmt henni fór fjölgun íbúða að mestu leyti til einstaklinga sem áttu eina íbúð tímabilinu 2016-2021. Fjölgunin gefur góða mynd af innkomu fyrstu kaupenda á húsnæðismarkað, sem var umfangsmikil á því tímabili. Á síðustu tveimur árum hefur fyrstu kaupendum hins vegar fækkað auk þess sem fleiri fullbúnar íbúðir hafa verið óseldar og í eigu fyrirtækja í mannvirkjagerð.

Aukning í fjölda íbúða eftir eignarhaldi 2003-2023

Stór­tæk­ir lög­að­il­ar bættu við sig tæp­lega 800 íbúð­um í fyrra

Líkt og myndin sýnir fjölgaði íbúðum í eigu lögaðila og stærri íbúðaeigenda með nokkuð jöfnum hætti á sama tíma, en árleg fjölgun var þá á bilinu 500 til 1.300 á ári. Á síðustu árum hefur svo orðið viðsnúningur þar á, en leita þarf aftur til ársins 2010 til að finna viðlíka fjölgun með slíkt eignarhald og í fyrra.

Stærstur hluti fjölgunarinnar á íbúðum í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga meira en eina íbúð er vegna íbúðakaupa lögaðila, en íbúðum í eigu þeirra fjölgaði um 1.345 á síðasta ári. Þar af fjölgaði íbúðum í eigu lögaðila sem áttu fleiri en 20 íbúðir um 794.

Í fyrra var annað árið í röð sem íbúðum í eigu einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð fjölgaði svipað mikið og íbúðum í eigu einstaklinga sem eiga eina íbúð. Íbúðum þeirra sem eiga fleiri en eina íbúð fjölgaði um 820 og af þeim eru 287 í eigu einstaklinga sem eiga þrjár til fjórar íbúðir.

Á vef fasteignaskrár má sjá skiptingu íbúða eftir eignarhaldi. Þar sést að alls eru um 155 þúsund fullbúnar íbúðir á landinu. Þar af eru um 100 þúsund íbúðir sem eru í eigu einstaklinga sem eiga aðeins eina íbúð, en 55 þúsund íbúðir eru í eigu lögaðila eða einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS