31. janúar 2025
31. janúar 2025
Fjölgun íbúa í Rangárþingi ytra kallar á hraðari uppbyggingu húsnæðis
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Áætlað er að íbúum fjölgi um 332 manns á næstu 5 árum sem er fjölgun um 15,9 prósent.
- Þörf er á byggingu 28 nýrra íbúða á ári en lóðir hafa aðeins verið skipulagðar fyrir 70 íbúðir til næstu 5 ára.
- Sveitarfélagið setur sér markmið um að útrýma biðlistum eftir félagslegu húsnæði.
Rangárþing ytra hefur staðfest endurskoðun á húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2025. Samkvæmt miðspá mannfjöldaþróunar áætlar sveitarfélagið að mannfjöldi aukist um 697 manns eða 34,4 prósent næstu 10 árin. Til samanburðar hefur íbúum í sveitarfélaginu fjölgað um 284 frá árinu 2020 eða um 15,7 prósent.
Mikilvægi húsnæðisuppbyggingar
Samkvæmt húsnæðisáætluninni er gert ráð fyrir að þörf verði fyrir um 28 íbúðir á ári, 138 íbúðir á næstu 5 árum og 297 íbúðir næstu 10 ár. Endurskoðuð áætlun sveitarfélagsins er nokkuð yfir fyrri áætlunum þar sem áður var gert ráð fyrir að þörf væri fyrir 15-20 íbúðir árlega í samræmi við þróun síðustu fimm ára, þar sem fullbúnum íbúðum hefur fjölgað að meðaltali um 28 á ári.
Samkvæmt talningu HMS voru einungis átta íbúðir í byggingu í Rangárþingi ytra í september 2024, sem er veruleg fækkun miðað við sama tímabil síðustu tvö ár. Á meðfylgjandi mynd má sjá að meirihluti þessara íbúða er á framvindustigi fjögur, sem þýðir að þær hafa verið gerðar fokheldar. Fjöldi íbúða í byggingu er því langt frá því að mæta þeirri íbúðaþörf sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir á næstu tveimur árum.
Markmið og framtíðaráætlanir
Sveitarfélagið hefur sett sér það markmið að útrýma biðlistum eftir félagslegum búsetuúrræðum og tryggja fjölbreytt húsnæðisframboð fyrir tekjulága. Áætlanir gera ráð fyrir að leigufélagið Bjarg byggi fimm leiguíbúðir árið 2026 og Brák íbúðafélag bæti við tveimur íbúðum. Að auki vinnur sveitarfélagið að lausn húsnæðisvanda fatlaðs fólks í samstarfi við Bergrisann bs.
Rangárþing ytra hefur nú skipulagt lóðir fyrir 70 íbúðir á næstu 5 árum. Þetta er þó langt frá því að uppfylla áætlaða íbúðaþörf sveitarfélagsins sem gerir ráð fyrir að 138 íbúðir þurfi að rísa á sama tímabili. Sveitarfélagið stendur því frammi fyrir þeim áskorunum að hraða uppbyggingu til að mæta aukinni eftirspurn og tryggja að nægilegt framboð húsnæðis sé til staðar fyrir alla íbúa.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS