16. maí 2025
24. apríl 2023
Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í mars 2023
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði í mars 2023 eftir landshlutum.
Heildarfjöldi samninga á landinu voru 339 í síðasta mánuði og fækkaði þeim um 22% frá því í febrúar 2023 og fækkaði um 56% frá mars 2022.
Heildarfjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu voru 242 og fækkaði þeim um 22% frá því í febrúar 2023 og um 55% frá mars 2022.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
2.992 samningar verið skráðir í leiguskrá
Hafa verður í huga að um áramót tóku gildi breytingar á lögum um húsaleigu sem skylda leigusala í atvinnurekstri til að skrá leigusamninga í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS. Skráning í grunninn er jafnframt skilyrði þess að leigjandi njóti réttar til húsnæðisbóta. Þinglýsing leigusamnings er því ekki lengur skilyrði húsnæðisbóta og því má búast við að þinglýstum leigusamningum fari fækkandi.
Alls voru 248 húsaleigusamningar skráðir í leiguskrána sem tóku gildi í mars sl. sem er 23% fækkun frá febrúar en þá tóku í gildi 321 samningur. Alls hafa 2.992 samningar verið skráðir í leiguskránna.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS