15. maí 2025
16. febrúar 2023
Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í janúar 2023
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum með í janúar 2023 eftir landshlutum.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði í janúar 2023 eftir landshlutum.
Heildarfjöldi samninga á landinu voru 577 í síðasta mánuði og fækkaði þeim um 27% frá því í desember 2022 og fækkaði um 14% frá janúar 2022.
Heildarfjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu voru 423 og fækkaði þeim um 23% frá því í desember 2022 og um 14% frá janúar 2022.
Smelltu hér til að skoða excel skjalið.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
Hafa verður í huga að um áramót tóku gildi breytingar á lögum um húsaleigu sem skylda leigusala í atvinnurekstri til að skrá leigusamninga í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS. Skráning í grunninn er jafnframt skilyrði þess að leigjandi njóta réttar til húsnæðisbóta. Þinglýsing leigusamnings er því ekki lengur skilyrði húsnæðisbóta og því má búast við að þinglýstum leigusamningum fari fækkandi. HMS mun þegar reynsla er komin á skráningu leiguskrár HMS birta upplýsingar um fjölda leigusamninga sem þar eru skráðir.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS