23. október 2023

Fjöldi leigusamninga um íbúðarhúsnæði í september 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði í september 2023 eftir landshlutum.

  • Heildarfjöldi samninga á landinu voru 358 í síðasta mánuði og fjölgaði þeim um 5,6 % frá því í ágúst 2023 en fækkaði um 57,3% frá september 2022.
  • Heildarfjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu voru 257 og fjölgaði þeim um 14 samninga frá ágúst 2023 en fækkaði um 57,5% frá september 2022.

Skráning leigusamninga í leiguskrá

Hafa verður í huga að um síðustu áramót tóku gildi breytingar á lögum um húsaleigu sem skylda leigusala í atvinnurekstri til að skrá leigusamninga í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS. Skráning í grunninn er jafnframt skilyrði þess að leigjandi njóti réttar til húsnæðisbóta. Þinglýsing leigusamnings er því ekki lengur skilyrði húsnæðisbóta og því má búast við að þinglýstum leigusamningum fari fækkandi.

Alls voru 1.102 húsaleigusamningar skráðir í leiguskrána sem tóku gildi í september sl. sem er 42,4% fækkun frá ágúst en þá tóku í gildi 1.912 samningar. Alls hafa verið skráðir inn 15.957 leigusamningar og þar af 437 sem eru útrunnir eða þeim hefur verið sagt upp.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS