5. desember 2023

Fjöldi leigusamninga um íbúðarhúsnæði í október 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Fjöldi þinglýstra leigusamninga

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði í október 2023 eftir landshlutum.

  • Heildarfjöldi samninga á landinu voru 253 í síðasta mánuði og fækkaði þeim um 29,3 % frá því í september 2023 og fækkaði um 64,6% frá október 2022.
  • Heildarfjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu voru 163 og fækkaði þeim um 94 samninga frá september 2023 og fækkaði um 67% frá október 2022.

Skráning leigusamninga í leiguskrá

Hafa verður í huga að um síðustu áramót tóku gildi breytingar á lögum um húsaleigu sem skylda leigusala í atvinnurekstri til að skrá leigusamninga í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS. Skráning í grunninn er jafnframt skilyrði þess að leigjandi njóti réttar til húsnæðisbóta. Þinglýsing leigusamnings er því ekki lengur skilyrði húsnæðisbóta og því má búast við að þinglýstum leigusamningum fari fækkandi.

Alls voru 996 húsaleigusamningar skráðir í leiguskrána sem tóku gildi í október sl. sem er 20,2% fækkun frá september en þá tóku í gildi 1248 samningar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS