28. júní 2023

Fjöldi leigusamninga um íbúðarhúsnæði í maí 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði í maí 2023 eftir landshlutum.

  • Heildarfjöldi samninga á landinu voru 350 í síðasta mánuði og fjölgaði þeim um 27,8 % frá því í apríl 2023 en fækkaði um 57,3% frá maí 2022.
  • Heildarfjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu voru 234 og fjölgaði þeim um 17,6% frá því í apríl 2023 en fækkaði um 56,6 % frá maí 2022.

3.816 samningar verið skráðir í leiguskrá
Hafa verður í huga að um áramót tóku gildi breytingar á lögum um húsaleigu sem skylda leigusala í atvinnurekstri til að skrá leigusamninga í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS. Skráning í grunninn er jafnframt skilyrði þess að leigjandi njóti réttar til húsnæðisbóta. Þinglýsing leigusamnings er því ekki lengur skilyrði húsnæðisbóta og því má búast við að þinglýstum leigusamningum fari fækkandi.

Alls voru 293 húsaleigusamningar skráðir í leiguskrána sem tóku gildi í maí sl. sem er 2,3% fækkun frá apríl en þá tóku í gildi 300 samningar. Alls hafa 3.816 samningar verið skráðir í leiguskránna.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS