22. maí 2023

Fjöldi leigusamninga um íbúðarhúsnæði í apríl 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði í apríl 2023 eftir landshlutum.

  • Heildarfjöldi samninga á landinu voru 274 í síðasta mánuði og fækkaði þeim um 19,2% frá því í mars 2023 og fækkaði um 57,3% frá apríl 2022.
  • Heildarfjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu voru 199 og fækkaði þeim um 17,8% frá því í mars 2023 og um 55,8% frá apríl 2022.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

3.365 samningar verið skráðir í leiguskrá
Hafa verður í huga að um áramót tóku gildi breytingar á lögum um húsaleigu sem skylda leigusala í atvinnurekstri til að skrá leigusamninga í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS. Skráning í grunninn er jafnframt skilyrði þess að leigjandi njóti réttar til húsnæðisbóta. Þinglýsing leigusamnings er því ekki lengur skilyrði húsnæðisbóta og því má búast við að þinglýstum leigusamningum fari fækkandi.

Alls voru 283 húsaleigusamningar skráðir í leiguskrána sem tóku gildi í apríl sl. sem er 23% fjölgun frá mars en þá tóku í gildi 255 samningar. Alls hafa 3.365 samningar verið skráðir í leiguskránna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS