16. júní 2021

Fasteignaverð hækkar um 1,6% milli mánaða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Nýjar tölur Þjóðskrár um vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýna að íbúðaverð hækkaði um 1,6% í maí mánuði. Líkt og í síðasta mánuði er stærsti vigtin í hækkun íbúðarhúsnæðisvísitölunni á höfuðborgarsvæðinu hækkanir á sérbýli en það hækkar um 2,4% á milli mánaða á meðan fjölbýli hækkar um 1,4% á sama tímabili. Þetta er mun minni hækkun en hefur verið seinustu mánuði á undan en til að mynda þá hækkaði vísitalan í apríl um 2,8% og í mars var hækkunin 3,3%.

Fjöldi kaupsamninga fækkar milli mánaða

Fjöldi kaupsamninga í apríl á þessu ári var þriðjungi minni en mánuðinn á undan. Mars mánuður var hins vegar metmánuður í kaupsamningum þar sem afturvirkar skráningar urðu til þess að þeim fjölgaði úr 1302 í 1566. Í apríl mánuði má almennt vænta þess að það séu færri samningar vegna páskanna en kaupsamningum mun líklega fjölga afturvirkt eftir því sem þinglýsingum vindur fram og er vænst þess að hann verði stór í sögulegu samhengi. Fjölda kaupsamninga eftir mánuðum hvers árs má sjá ámyndinni hér að neðan og þar sést að útgefnir kaupsamningar hafa aldrei áður verið fleiri í aprílmánuði en nú seinast.

Sérbýli leiða áfram hækkanir á íbúðaverði

Þó að verðhækkanir hafi verið minni í maí en mánuðina á undan þá hefur fasteignaverð hækkað mikið undanfarið ár. Ef litið er á 12 mánaða hækkun fasteignaverðs þá hefur verð hækkað um 14,6% eins og sést á myndinni hér að neðan en leita þarf aftur til ársins 2017 til að finna viðlíka hækkanir. Töluvert meiri hækkanir hafa verið á sérbýli en þau hafa hækkað um 18,1% á meðan fjölbýli hefur hækkað um 13,1% á sama tíma.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS