4. júní 2026

Fasteignaskrá lokuð vegna kerfisuppfærslu 5-7 júní

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Fasteignaskrá HMS verður óaðgengileg frá kl. 17 á föstudag til kl. 13 á sunnudag vegna uppfærslu á gagnagrunnum
  • Ýmis kerfi og þjónustur verða einnig óaðgengilegar á meðan á uppfærslu stendur
  • Truflanir verða á vefþjónustum fasteignaskrár og kerfum sem nýta gögn úr henni auk þess sem sumar upplýsingar verða óaðgengilegar á Ísland.is

Uppfærsla á gagnagrunnum fasteignaskrár fer fram helgina 5.– 7. júní. Á meðan á uppfærslu stendur verður grunnurinn óaðgengilegur sem mun hafa áhrif á ýmis kerfi og þjónustur.

Gert er ráð fyrir að vinna við uppfærsluna hefjist um kl. 17:00 á föstudaginn og verði lokið um kl. 13:00 á sunnudaginn.

Meðal þeirra kerfa sem verða óaðgengileg eru

  • Allar rafrænar þinglýsingar  
  • Fasteignaskrá
  • Ökutækjaskrá
  • Leiguskrá
  • Skráningarkerfi byggingarfulltrúa (Bygging)
  • Vefuppfletti
  • Tryggingabanki
  • Verðsjá fasteigna
  • Upplýsingar um leigusamninga og húsnæðisbætur á Mínum síðum HMS
  • Álagningarseðlar
  • Fasteignatilkynningar

Auk þess verður ekki hægt að nálgast upplýsingar um fasteignir, þinglýst skjöl og vottorð frá sýslumanni á mínum síðum á Ísland.is 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS