20. júní 2025
20. júní 2025
Fasteignasalar telja markaðinn á valdi kaupenda á höfuðborgarsvæðinu í júní
HMS framkvæmdi sína aðra mánaðarlegu spurningakönnun á meðal fasteignasala þann 16. júní, en í könnuninni er spurt um viðhorf fasteignasalanna til fasteignamarkaðarins. Könnunin var send á félagsmenn Félags fasteignasala, en þeir eru um 330 talsins. Alls bárust 112 svör og var svarhlutfall því 34%.
Niðurstöður könnunarinnar bendir til þess að markaðurinn sé á valdi kaupenda en í síðasta mánuði var meirihluti fasteignasala á því að markaðurinn væri hvorki á valdi kaupenda né seljenda.
Þetta kemur sér í lagi fram í svörum fasteignasala sem miðla fasteignum á höfuðborgarsvæðinu, en á landsbyggðinni eru ívið fleiri sem telja markaðinn vera hvorki á valdi kaupanda né seljenda. Á meðfylgjandi mynd má sjá hlutfall þeirra fasteignasala sem svöruðu því til að markaðurinn væri á valdi kaupanda, í jafnvægi eða á valdi seljenda eftir því hvort fasteignasali miðlaði fasteignum á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni.
Meirihluti fasteignasala á höfuðborgarsvæðinu telja verðþróun á fasteignamarkaði þessa stundina vera stöðuga og um fimmti hver fasteignasali telur verðþróun vera til lítilsháttar hækkunar. Álíka svör um verðþróun má lesa úr svörum þeirra fasteignasala sem miðla fasteignum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Hins vegar upplifa fasteignasalar sem miðla fasteignum á Akureyri að verð fari hækkandi þar en lítillega þó.
Á meðfylgjandi mynd má sjá út frá meðaltali svarenda könnunarinnar í júní að fasteignamarkaðurinn er á valdi kaupenda þessa stundina.