28. maí 2025

Fasteignamat er reiknað með sambærilegum hætti og í samanburðarlöndum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Almennt eru fasteignagjöld í samanburðarlöndum lægri en á Íslandi
  • PwC segir regluverk Jöfnunarsjóðs refsa sveitarfélögum sem lækka álagningu og hvetji þannig til hærri álagningar en ella.
  • Tækifæri er til að nýta álagningu fasteignagjalda betur til þess að stuðla að bættri nýtingu íbúðarhúsnæðis og byggingarlands

Fyrirkomulag fasteignamats  og álagningar fasteignagjalda á Íslandi er í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar bestu aðferðir. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem PwC á Íslandi gerði fyrir HMS um fasteignamat og álagningu fasteignagjalda. Skýrsluna má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Skýrsla PwC um fasteignamat og fasteignagjöld

Samkvæmt PwC eiga fasteignamat og fasteignagjöld á Íslandi, Danmörku,  Noregi, Svíþjóð og Hollandi ýmislegt sameiginlegt hvað varðar framkvæmd álagningar fasteignagjalda og útreikning skattstofnsins. Hins vegar séu fasteignagjöld hérlendis nokkuð hærri en í samanburðarlöndum.

Sveit­ar­fé­lög­um sett­ar skorð­ur við álagn­ingu fast­eigna­gjalda

Fasteignagjöld eru almennt lögð á og innheimt af sveitarfélögum í hverju landi sem hlutfall af fasteignamati eða lóðamati.  Í skýrslu PwC kemur fram að í nágrannaríkjum Íslands séu sveitarfélögin á fjárlögum, sem veitir þeim meiri sveigjanleika í álagningu fasteignaskatta en á Íslandi og getur þannig leitt til sanngjarnari og hagkvæmari nýtingar á skatttekjum.

Á Íslandi er hins vegar til staðar Jöfnunarsjóður sveitarfélaga sem jafnar út skatttekjur á milli sveitarfélaga. Samkvæmt PwC refsar jöfnunarsjóðurinn sveitarfélögum sem lækka álagningu fasteignagjalda og skapar þannig hvata til þungrar skattbyrðar á íbúðarhúsnæði.

PwC leggur til að sveitarfélögum verði veittar auknar heimildir og meiri sveigjanleika til að nýta fasteignagjöld og -skatta sem stjórntæki. Slíkt gæti til dæmis falið í sér heimildir til hærri álagningar á íbúðarhúsnæði sem ekki er nýtt til búsetu og heimildir til að setja upp hvata til nýtingar á lóðum eða til að flýta uppbyggingu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS