23. maí 2025
23. maí 2025
Fasteignamat 2026 kynnt á opnum fundi 28. maí
- HMS mun kynna helstu niðurstöður úr fyrirhuguðu fasteignamati fyrir árið 2026 á opnum fundi í Borgartúni 21 miðvikudaginn 28. maí
- Á fundinum mun PwC einnig kynna skýrslu um fyrirkomulag fasteignamats og fasteignagjalda á Íslandi og í samanburðarlöndum
- Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs mun einnig halda erindi á fundinum um tækifæri og áskoranir sveitarfélaga
Helstu niðurstöður úr fyrirhuguðu fasteignamati fyrir árið 2026 verða kynntar á opnum fundi sem haldinn verður í húsakynnum HMS miðvikudaginn 28. maí klukkan 10:00. Fundinum verður einnig streymt á hms.is/streymi.
HMS endurmetur lögum samkvæmt skráð matsverð allra fasteigna á Íslandi árlega og kynnir niðurstöðurnar fyrir öllum sveitarfélögum og eigendum fasteigna. Fyrirhugað fasteignamat mun taka gildi þann 31. desember á þessu ári og verður það notað til að reikna út fasteignagjöld fyrir árið 2026. Þegar fasteignamat verður tilbúið mun það vera aðgengilegt í fasteignaleit HMS.
Á fundinum þann 28. maí mun HMS fara yfir helstu niðurstöður úr fyrirhuguðu fasteignamati eftir tegundum fasteigna og mismunandi matssvæðum landsins. HMS mun einnig fara yfir áhrifaþætti fasteignamats og fyrirhugaðar breytingar á fasteignamati.
Örn Valdimarsson sviðsstjóri ráðgjafarsviðs hjá PwC mun einnig fara yfir nýlega skýrslu sem unnin var fyrir HMS um fyrirkomulag fasteignamats og álagningu fasteignagjalda í alþjóðlegum samanburði. Sömuleiðis mun Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogsbæjar fara yfir tækifæri og áskoranir sveitarfélaga tengdri álagningu fasteignagjalda.