3. mars 2022

Fairvape innkallar einnota rafrettu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Fairvape hefur innkallað einnota rafrettur frá N ONE. Ástæða innköllunarinnar er að við prófun kom í ljós að rafretturnar láku nikótínvökva. Um er að ræða sex bragðtegundir N ONE 300 puffs, sjá meðfylgjandi mynd.

Í tilkynningunni kemur fram að Fairvape biður þá sem eiga slíka vöru að skila henni í verslun svo hægt sé að farga vörunni. Rafrettan verður endurgreidd en einnig verður hægt að fá afhenda nýja útgáfu.

Fólk er hvatt til að hafa samband við Fairvape og skila rafrettunni. Oft eru lokkandi lyktir og brögð af rafrettuvökva sem getur verið ómótstæðilegt fyrir litla munna. Komist börn í sterkan nikótínvökva getur það haft skelfilegar afleiðingar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS