8. maí 2025
28. maí 2024
Fáir kaupsamningar um atvinnuhúsnæði í apríl
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Heildarvelta kaupsamninga um atvinnuhúsnæði nam 8,4 milljörðum króna í apríl, sem er 4,8 prósentum yfir langtímameðaltali síðustu þriggja ára og 30 prósentum yfir heildarveltu marsmánaðar. Þetta kemur fram í mánaðarlegum tölum HMS um veltu með atvinnuhúsnæði, sem nálgast má hér að neðan.
Mánaðartölur um veltu með atvinnuhúsnæði
Mánaðartölur um veltu með atvinnuhúsnæði
Alls nam velta með atvinnuhúsnæði 32,2 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs og er það nokkuð svipuð upphæð miðað við sama tímabil í fyrra en þá nam veltan einnig 32 milljörðum króna. Þó hefur kaupsamningum fækkað nokkuð á milli ára, en þeir voru 343 talsins á fyrstu fjórum mánuðum ársins, samanborið við 413 á fyrstu fjórum mánuðum 2023.
Hærri velta milli mánaða á öllu landinu
HMS hefur áður greint frá því að viðskipti með atvinnuhúsnæði hafi tekið við sér eftir að hafa dregist saman á miðju síðasta ári. Viðskipti með atvinnuhúsnæði í apríl var 30 prósentum yfir heildarveltu marsmánaðar en fjöldi kaupsamninga voru alls 79 í apríl og hafa þeir ekki verið færri í aprílmánuði í fjögur ár.
Á höfuðborgarsvæðinu var heildarvelta kaupsamninga 6,1 milljarðar króna í apríl sem er 22 prósentum hærri en í marsmánuði. Heildarveltan utan höfuðborgarsvæðisins jókst einnig milli mánaða, eða úr 1,5 milljörðum króna í 2,3 milljarða króna.
Þessi frétt var uppfærð 26. júní 2024.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS