3. júní 2025

Færri nýjar lóðir skráðar í maí 2025

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Alls var 71 ný lóð skráð í fasteignaskrá í maí um allt land, þar af 38 íbúðarhúsalóðir, 15 sumarhúsalóðir og 15 atvinnuhúsalóðir
  • Flestar skráningar voru í Kjósarhreppi og Garðabæ
  • Mikil uppbygging í Bláskógabyggð, Ölfusi og Árborg

Alls var 71 ný lóð staðfest í fasteignaskrá HMS í maímánuði 2025 og fækkar þeim um rúmlega hundrað á milli mánaða. Flestar lóðir voru íbúðarhúsalóðir eða alls 38 talsins. Auk þess voru skráðar 15 sumarhúsalóðir og 15 atvinnuhúsalóðir. Aðrar tegundir lóða voru þrjár talsins.

Myndin hér að ofan sýnir mánaðarlegar tölur um fjölda nýskráðra lóða eftir öllum flokkum. Lóðir skráðar sem annað land eða einfaldlega lóð voru 3 talsins í maí, en líklegt er að þessar lóðir breyti um gerð þegar fram líða stundir og verði skráðar sem atvinnu-, sumarhúsa- eða íbúðarlóðir.

Flest­ar lóð­ir stað­fest­ar í Kjós­ar­hreppi

Flestar lóðir voru skráðar í Kjósarhreppi, þar sem 19 lóðir bættust við, þar af voru 18 fyrir íbúðarhús. Í Garðabæ voru skráðar 13 nýjar lóðir, allar fyrir íbúðarhús. Þessi tvö sveitarfélög voru því áberandi í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í mánuðinum.

Í Bláskógabyggð voru skráðar 9 nýjar lóðir fyrir frístundahús. Atvinnuhúsalóðir voru flestar í Sveitarfélaginu Ölfusi, alls sex, og fjórar í Sveitarfélaginu Árborg.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS