21. júní 2021

Fækkun í fjölda kaup- og leigusamninga

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í maí voru 1.185 útgefnir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði. Það er um 30 samningum minna en í apríl, þó er ekki ólíklegt að tölurnar fyrir maí verði færðar uppá við eftir á ef ekki hefur náðst að þinglýsa öllum samningum. Þetta eru töluvert færri samningar en voru í marsmánuði eða 30% fækkun , hins vegar er vert að taka fram að mars var metmánuður og hafa aldrei verið fleiri útgefnir kaupsamningar í einum mánuði.

Þó er ekki um neina ládeyðu á markaði að ræða því það hefur einungis einu sinni áður verið fleiri kaupsamningar undirritaðir í maímánuði  og það var á fasteignaárinu mikla 2007. Þetta er þó í fyrsta sinn síðan í ágúst á síðasta ári þar sem ekki er um að ræða metmánuð miðað við árstíma eins og sést á myndinni hér að neðan. Þó virðist enn vera nokkur eftirspurnarþrýstingur á fasteignamarkaði, eins og fram kemur í mánaðarskýrslu hagdeildar sem var gefin út fyrr í mánuðinum. Þó verður athyglisvert að sjá hvernig þróun næstu mánaða verður í ljósi nýlegra stýrivaxtahækkana Seðlabankans og hvort að hækkunin komi til með að draga úr þessum mikla eftirspurnarþrýstingi sem hefur verið viðvarandi.

Leigu­samn­ing­ar ekki ver­ið færri síð­an 2019

Í maí var 605 leigusamningum þinglýst sem er um 10% færri samningar en í mánuðinum á undan. Þar af voru 400 leigusamningar á höfuðborgarsvæðinu og 205 á landsbyggðinni. Þróunina undanfarin ár má sjá á meðfylgjandi mynd.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins voru leigusamningar óvenjumargir miðað við árstíma en síðan þá hefur dregið úr og nú í maí voru færri leigusamningum þinglýst en hefur verið síðan maí 2008.

Á sama tíma er leiguverð að lækka a höfuðborgarsvæðinu og mælist 12 mánaða breyting vísitölu leiguverðs HMS neikvæð um 2,4% fyrir apríl mánuð en þetta er í áttunda mánuðinn í röð þar sem 12 mánaða breytingin mælist neikvæð á höfuðborgarsvæðinu. Annars staðar á landinu mælast hóflegar hækkanir á leiguverði en í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins hefur vísitalan hækkað um 1,8% á síðustu 12 mánuðum og annars staðar á landsbyggðinni hefur hún hækkað 4,3%.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS