3. desember 2024

Fáar lóðir skráðar í nóvember

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Alls voru 36 lóðir staðfestar í Fasteignaskrá HMS í nóvember um allt land
  • Flestar lóðir voru íbúðarhúsalóðir eða 20 talsins
  • Nýskráðum lóðum fækkar töluvert á milli mánaða, eða úr 165 í 36

Í nóvember voru 36 nýjar lóðir um allt land staðfestar í Fasteignaskrá HMS og fækkar þeim um 129 frá því í október. Flestar lóðir voru íbúðarhúsalóðir eða alls 20 talsins, en slíkum lóðum fækkar á milli mánaða eða um 50 talsins. Auk þess voru skráðar 5 sumarhúsalóðir og 9 atvinnuhúsalóðir eða aðrar lóðir.

Fjöldi ný­­skráðra lóða um allt land eft­­ir mán­uð­um og flokk­um

Myndin hér að ofan sýnir mánaðarlegar tölur um fjölda nýskráðra lóða eftir öllum flokkum. Lóðir skráðar sem annað land eða einfaldlega lóð voru 6 talsins í nóvember, en líklegast er að þessar lóðir breyti um gerð þegar fram líða stundir og verði þá skráðar sem atvinnu-, sumarhúsa- eða íbúðarlóðir.

Flestar nýjar lóðir voru staðfestar í Múlaþingi eða níu talsins, þar af átta íbúðarhúsalóðir við Unulæk. Bláskógabyggð var með næstflestar íbúðahúsalóðir eða sjö í nýju hverfi í Reykholti.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS