8. maí 2025
25. febrúar 2021
Eru hús á Íslandi örugg fyrir jarðskjálftum?
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Í gær reið yfir landið hrina jarðskjálfta sem fundust víða og voru sumir þeirra þó nokkuð stórir. Þetta fær eflaust marga til að spyrja sig hvort hús hér á landi séu örugg í jarðskjálftum. Stutta svarið við því er að hús og önnur mannvirki hér á landi eru flest byggð með tilliti til þess að standast jarðskjálfta.

Margir samverkandi þættir hafa áhrif á það hvernig mannvirkjum reiðir af í jarðskjálftum. Þar má helst nefna undirstöður, form, efni, frágang, hönnun og viðhald.
Miklu skiptir að hús séu vel fest við undirstöðurnar en á Íslandi er algengt að íbúðarhús séu fest við húsgrunninn á malarpúðum eða byggð beint á klöpp. Til að verja hús fyrir jarðskjálftum þá skipta byggingarefnin einnig miklu máli. Eftir því sem mannvirki er þyngra þá er meiri hætta á áhrifum af völdum jarðskjálfta.
Á Íslandi eru flest hús vel byggð og þau hönnuð með tiliti til jarðskjálfta og annarra náttúruafla. Í íslenskum byggingarreglugerðum kemur fram hanna þurfi mannvirki með tilliti til náttúruafla, á borð við jarðskjálfta. Það er því sjaldgæft að fólk slasist í jarðskjálftum hér á landi, og er það þá oftar vegna lausamuna. HMS hvetur því fólk til þess að huga að lausamunum, s.s. festa hillur, myndir, skápa og stór rafmagnstæki ef það vill forðast tjón í jarðskjálftum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS