8. maí 2025
30. apríl 2020
Ertu með húsnæðislán og þarft greiðsluhlé?
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Samantekt HMS á úrræðum lánveitenda
Samantekt HMS á úrræðum lánveitenda
Bankar og lífeyrissjóðir hafa á undanförnum vikum boðið viðskiptavinum sínum, sem eru með húsnæðislán, að gera tímabundið hlé á afborgunum. Er það gert til að veita fólki svigrúm til að bregðast við tekjusamdrætti fólks vegna COVID-19, hvort sem fólk hafi misst vinnuna eða tekið á sig skert starfshlutfall.
Nokkuð ólíkt er milli lánastofnana hvernig úrræðið er útfært, s.s. hversu lengi það er í boði, hvort hægt sé að greiða inn á lánið á tímabilinu eða jafnvel hefja afborganir að nýju, fyrr en samið er um í upphafi. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur hér tekið saman upplýsingar um öll þau tímabundnu greiðsluúrræði sem almenningi bjóðast, byggt á upplýsingum frá viðkomandi lánastofnunum.
Ábendingar eða leiðréttingar berist til hms@hms.is
Bankar og stofnanir
Arionbanki
Hægt er að sækja um greiðsluhlé í 1-3 mánuði. Lánstími lengist ekki sem nemur lengd greiðsluhlés. Meðan á hléinu stendur leggjast afborganir og vextir íbúðalána á höfuðstól lánsins til hækkunar á því. Þessi hækkun á höfuðstól leiðir til þess að afborganir lánsins eftir að úrræðinu lýkur hækka.
Kostnaður við þinglýsingu er kr. 2.500 á hvert þinglýst skjal. Við vinnslu skilmálabreytingar þarf að taka út veðbókarvottorð eignarinnar. Veðbókarvottorð er sótt með rafrænum hætti til sýslumannsembætta og er kostnaður við veðbók kr. 1.055. Arion banki innheimtir engar þóknanir vegna frystingarinnar og allur kostnaður er vegna opinberra gjalda.
Lán þarf að vera í skilum svo unnt sé að afgreiða umsókn um greiðsluhlé. Bankinn býður upp á að koma gögnunum í þinglýsingu. Úrræðið gildir fyrir lán með lánsveði.
Leyfilegt er að greiða inn á lánið á meðan greiðsluhléi stendur en ekki er unnt að binda enda á greiðsluhléið fyrr en samið hafði verið um.
Upplýsingar um greiðsluhlé á heimasíðu Arionbanka.
Íslandsbanki
Hægt er að sækja um greiðsluhlé í 3-7 mánuði. Lánstími lengist ekki sem nemur lengd greiðsluhlés. Á meðan leggjast vextir við höfuðstólinn á láninu. Þegar greiðslufreststímabili lýkur má gera ráð fyrir að greiðslubyrðin á láninu verði hærri að öllu óbreyttu þar sem höfuðstóllinn hefur hækkað. Greiðslufrestur á láni er framkvæmdur með svokallaðri skilmálabreytingu sem er undirrituð með rafrænum hætti.
Það kostar 3.700 kr. að sækja um greiðsluhlé (kostnaður við þinglýsingu og veðbandayfirlit).
Heimilt er að sækja um greiðsluhlé jafnvel þótt lán sé í vanskilum. Bankinn býður upp á að koma gögnunum í þinglýsingu. Úrræðið gildir fyrir lán með lánsveði en þinglýstur eigandi þarf að samþykkja skilmálabreytingu.
Leyfilegt er að greiða inn á lánið á meðan greiðsluhléi stendur og sömuleiðis má binda enda á greiðsluhléið fyrr en samið hafði verið um.
Upplýsingar um greiðsluhlé á heimasíðu Íslandsbanka.
Landsbankinn
Hægt er að sækja um greiðsluhlé í 1-6 mánuði. Það getur komið til þess að bankinn óski eftir staðfestingu á tekjuskerðingu viðskiptavinar.
Lánstíminn er lengdur sem nemur frestunartímanum. Vextir safnast upp og leggjast við höfuðstól lánsins að loknu tímabilinu.
Kostnaður er 2.500 krónur fyrir hverja skilmálabreytingu (kostnaður við þinglýsingu).
Sé lán í vanskilum er hægt að senda bankanum tölvupóst og óska eftir að málið sé skoðað og lausn fundin. Bankinn býður upp á að koma gögnunum í þinglýsingu. Ekki er hægt að sækja um greiðsluhlé sé lánið með lánsveð.
Leyfilegt er að greiða inn á lánið á meðan greiðsluhléi stendur og sömuleiðis má binda enda á greiðsluhléið fyrr en samið hafði verið um.
Upplýsingar um greiðsluhlé á heimasíðu Landsbankans.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Hægt er að sækja um greiðsluhlé í 1-3 mánuði.
Lánstíminn lengist ekki sem nemur lengd greiðsluhlés nema sérstaklega sé óskað eftir því. Afborgunum og vöxtum á tímabilinu sem greiðsluhléið nær yfir er bætt við höfuðstól lánsins. Endurgreiðsluupphæð lánsins hækkar sé lengt í lánstímanum en lítill munur er á greiðslubyrði lánsins, fyrir og eftir greiðsluhlé, hvort sem lánið er lengt eða ekki.
Kostnaður er 2.500 krónur fyrir hverja skilmálabreytingu (kostnaður við þinglýsingu).
Til að HMS samþykki greiðsluhlé þarf lánið að hafa verið í skilum 1. febrúar og ekki mega hafa verið veruleg vanskil sl. 12 mánuði. Sjóðurinn kemur gögnunum í þinglýsingu.
Leyfilegt er að greiða inn á lánið á meðan greiðsluhléi stendur og sömuleiðis má binda enda á greiðsluhléið fyrr en samið hafði verið um.
Upplýsingar um greiðsluhlé á heimasíðu HMS.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS