24. júní 2026

Endurnotkun byggingarefna: ný handbók komin út og fræðsluefni aðgengilegt

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Ný handbók um endurnotkun byggingarvara kom út í gær hjá Grænni byggð
  • Handbókin er hluti af aðgerð 4.12 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030
  • Bent er á skills4reuse með fríu kennsluefni um endurnotkun byggingarefna

Endurnotkun byggingarefna er mikilvægur þáttur í að draga úr úrgangi og styðja við sjálfbæra mannvirkjagerð. Nú hefur verið stigið mikilvægt skref með útgáfu nýrrar handbókar um endurnotkun byggingarvara.

Ný handbók og efnisyfirlit á vef Grænni byggðar

Í vikunni gaf Grænni byggð út handbók um endurnotkun byggingarvara, sem er hugsuð sem hagnýtur leiðarvísir fyrir þau sem vilja taka fyrstu skref í átt að sjálfbærari nýtingu byggingarefna.

Mynd: Handbók um endurnotkun, gefin út af Grænni byggð

Samhliða útgáfunni hefur verið opnuð síða á vef Grænni byggðar þar sem finna má yfirlit yfir mismunandi byggingarefni, möguleika á endurnotkun þeirra og þær hættur sem kunna að fylgja slíkri notkun.

Í handbókinni er meðal annars fjallað um:

  • möguleika til endurnotkunar byggingarefna
  • hagnýt ráð við val og notkun
  • hindranir, m.a. í regluverki, öryggis- og heilsuverndarmálum
  • möguleika til endurvinnslu og ávinning í formi minni kolefnislosunar

Handbókin er aðgengileg bæði á íslensku og ensku.

Hluti af Veg­vísi að vist­vænni mann­virkja­gerð

Handbókin byggir á aðgerð 4.12 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030, þar sem lögð er áhersla á að þróa hagnýtar leiðbeiningar um endurnotkun byggingarvara.

Markmið aðgerðarinnar er að:

  • auka hagnýta þekkingu á endurnotkun
  • skilgreina hvaða byggingarvörur henta til endurnotkunar
  • skýra hvaða gögn og kröfur þurfa að liggja til grundvallar
  • draga fram áhættu sem getur fylgt endurnotkun

Mynd: Aðgerð 4.12 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030, gefin út af Byggjum grænni framtíð

Fræðslu­efni um end­ur­notk­un á skills4reu­se

Af þessu tilefni er einnig rétt að minna á vefsíðuna skills4reuse, þar sem finna má þrjú námskeið um endurnotkun og endurvinnslu byggingarefna.

Kennsluefnið var þróað fyrir nemendur í iðnnámi en nýtist einnig breiðari hópi. Það er aðgengilegt án endurgjalds og má nota sem sjálfstætt námskeið eða aðlaga að kennslu eftir þörfum. Efnið var unnið með stuðningi frá Norrænu ráðherranefndinni innan norræna samstarfsverkefnisins Nordic Sustainable Construction.

Mynd: Skjáskot af vefsíðunni Skills4reuse, https://www.is.skills4reuse.com/

Saman styðja þessi verkfæri við aukna þekkingu og markvissari innleiðingu endurnotkunar byggingarefna í mannvirkjagerð.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS