17. desember 2020

Eldklár jólaráð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Nú er aðventan gengin í garð og mikið um að vera í aðdraganda jólanna. Til þess að við eigum öll gleðileg jól eru hér fimm eldklár jólaráð sem við hvetjum ykkur til að hafa sérstaklega í huga yfir hátíðarnar.

Nú er aðventan gengin í garð og mikið um að vera í aðdraganda jólanna. Til þess að við eigum öll gleðileg jól eru hér fimm eldklár jólaráð sem við hvetjum ykkur til að hafa sérstaklega í huga yfir hátíðarnar.

 

 

 

Kerti & aðventukransar 

Hugum einstaklega vel að kertum og kertaskreytingum um þessar mundir. Aðventukransar og annað jólaskraut geta verið góður eldsmatur og algengt er að kvikni í þeim á þessum tíma árs.  

  • Gætið vel að undirlaginu, t.d. að eldur komist ekki í greinar og annað efni sem algengt er að notað sé í skraut. 
  • Auðveldlega getur kviknað í skrauti sem sett eða límt er á kerti. 
  • Nauðsynlegt er að hafa reykskynjara í því rými sem kveikt er á kertum. Í raun mælumst við til að hafa reykskynjara í öllum rýmum heimilisins. 

          

Arineldur & kerti 

  • Farið aldrei frá logandi kerti eða arineld þegar börn eða dýr eru nálægt, þau geta verið forvitin og brennt sig. 
  • Ef þú kveikir á kerti skalt þú ganga úr skugga um að slökkt verði á því líka. 

Jólabaksturinn 

Eldhúsið er vinsæll staður í kringum hátíðarnar. Mikið mæðir á eldavélinni, ofninum og hrærivélinni svo dæmi sé tekið. Önnur sortin á fætur annarri læðist úr ofninum, sósan fær að malla og sykurinn brúnaður fyrir kartöflurnar. 

  • Gætið þess að slökkva á öllum hellum að notkun lokinni 
  • Það er auðvelt að gleyma sér, pössum að smákökurnar brenni ekki við í ofninum eða sykurinn á pönnunni. 
  • Mikilvægt er að hafa eldvarnarteppi til taks í eldhúsinu, að það sé rétt staðsett og að búið sé að hengja það upp. 
  • Sömu sögu má segja um reykskynjara eldhússins, hafið hann á réttum stað og gangið úr skugga um að hann sé virkur og í góðu lagi. 

Jólaseríur 

Jólaseríur eru frábærar að mörgu leyti, en þær lýsa upp dimmasta skammdegi okkar Íslendinga og bæta lit og lífi við aðventuna. 

  • Gætið þess að rafmagnsljósaseríur séu ekki undir eða ofan á einhverju. Slíkt getur ýtt undir hitamyndum sem getur leitt til íkveikju. 
  • Köld ljós skapa minni hættu eins og t.d. díóðuljós sem bera kaldar perur sem ekki hitna. 
  • Gætið þess að ofhlaða ekki fjöltengi með mörgum mismunandi jólaseríum, en slíkt getur skapað of mikið rafmagnsálag sem getur leitt til eldhættu. 

Raftæki 

  • Góð regla er að hafa raftæki ekki í sambandi nema þegar þau eru í notkun. 
  • Gætið þess að hlaða ekki of mörg raftæki samtímis 
  • Gangið úr skugga um að raftæki sem verið er að hlaða séu ekki upp í rúmi, ofan á teppi eða öðru sem getur ýtt undir hitamyndun. Slíkt getur skapað mikla eldhættu og leitt til íkveikju. 

         

 

Höfum hina heilögu þrenningu í lagi á heimilinu, reykskynjara, eldvarnarteppi og slökkvitæki. Hér má fræðast meira um búnaðinn. 

 

 

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS