20. júní 2025

Eftirfylgni húsnæðisáætlana sveitarfélaga fyrir árið 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Mannfjöldaspár sveitarfélaganna rættust að mestu leyti og fólksfjölgun á árinu 2024 einungis 214 manns minni en spár sem er mismunur upp á um 2,6%.
  • Færri íbúðir voru byggðar í fyrra heldur en áætlað var að þörf væri fyrir.
  • Langir biðlistar eftir íbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman helstu niðurstöður húsnæðisáætlana fyrir árið 2024 og borið þær saman við birtar rauntölur. Samantektina og árangur má finna í nýútgefinni skýrslu. 

Húsnæðisáætlanir 2024

Samantekt og árangur

Fólks­fjölg­un nán­ast í sam­ræmi við spár

Ekki náðist að byggja nægilega margar íbúðir í fyrra til þess að uppfylla áætlaða íbúðaþörf fyrir árið 2024, samkvæmt húsnæðisáætlunum sveitarfélaganna og rauntölum ársins. Spár sveitarfélaganna um þróun mannfjölda reyndust í heild nokkuð réttar, en á sumum svæðum raungerðist mun meiri fólksfjölgun heldur en búist var við eins og til að mynda í Garðabæ, á meðan ofmat var á vexti í öðrum sveitarfélögum eins og Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ. Mismunur á spám og raunfjölgun reyndist að lokum vera ofmat um 2,6% sem telur 214 manns.

Ekki náð­ist að klára að byggja nógu marg­ar íbúð­ir

Sveitarfélögin áætluðu að þörf væri fyrir rúmlega 4.000 nýjar íbúðir árið 2024, en 3.665 íbúðir voru fullbyggðar á árinu. Fjölgun íbúða var á sumum svæðum meiri heldur en áætlað að þörf væri fyrir og má þar nefna sveitarfélög eins og Sveitarfélagið Árborg og Hvalfjarðarsveit. Uppbygging nýrra íbúða var nokkuð undir áætlaðri þörf á höfuðborgarsvæðinu og þá helst í Hafnarfjarðarkaupstað og Reykjavíkurborg, en í þeim sveitarfélögum voru byggðar rúmlega 300 íbúðum færra heldur en metið var að væri þörf fyrir.

Myndskýring: Blái liturinn sýnir svæði þar sem fleiri íbúðir voru byggðar en áætlað var en rauði liturinn táknar svæði þar sem uppbygging var undir áætlaðri þörf. Því dekkri sem liturinn er, þeim mun meiri var frávikið frá áætlun. Hvítur litur táknar sveitarfélög sem ekki skiluðu inn húsnæðisáætlun. (Heimild: Húsnæðisáætlanir 2024)

Eftirspurn eftir félagslegum úrræðum er mikil. Um 11.700 félagsleg úrræði eru í notkun á landsvísu, skv. húsnæðisáætlunum, en samtals bíða um 7.200 manns eftir slíkum búsetuúrræðum og þar af rúmlega 5.900 manns á höfuðborgarsvæðinu.

Samantektin dregur fram nauðsyn þess að sveitarfélög samræmi áætlanir sínar og líti til heildarsvæða við stefnumótun sína í húsnæðismálum og skipulagningu á framtíðar uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, sérstaklega þar sem mörg sveitarfélög deila sama atvinnusvæði.

End­ur­skoð­un hús­næð­is­á­ætl­ana fyr­ir árið 2025

Nú eru síðustu sveitarfélög að afgreiða endurskoðaða húsnæðisáætlun fyrir árið 2025 og er hver og ein húsnæðisáætlun aðgengileg á vef HMS að lokinni staðfestingu viðkomandi sveitarstjórnar. Stefnt er að því að kynntar verði helstu niðurstöður húsnæðisáætlana fyrir 2025 og framtíðarhorfur íbúðauppbyggingar á opnum fundi hjá HMS í september næstkomandi.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS