15. desember 2020

Byggingavettvangurinn útfærir tillögur sínar um langtímaætlun um fyrirkomulag rannsókna, þróunar og nýsköpunar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur gert samkomulag við Byggingavettvanginn um útfærslu á tillögum um langtímaáætlun um fyrirkomulag rannsókna, þróunar og nýsköpunar í byggingariðnaði þar sem nú liggur fyrir að leggja á Nýsköpunarmiðstöð Íslands niður. Byggingavettvangurinn er samráðsvettvangur hagaðila í bygginga- og mannvirkjagerð.

„Næstu ár verða tími breytinga í byggingariðnaði og þörfin á bættum og vel skilgreindum áherslum í nýsköpun, rannsóknum og þróun í greininni hefur því aldrei verið meiri. Tækifærin eru fjölmörg og iðnaðurinn, opinberir aðilar og menntakerfið eiga að grípa þau með auknum áherslum á að efla frjóa hugsun og tækifæri sem liggja í tækninýjungum, sjálfvirknivæðingu og þróun efna,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. 

Í tillögum að langtímaaðgerðaáætlun á  Byggingarvettvangurinn að koma fram skýra sýn á eftirfarandi þætti:

  • Hvernig tryggja megi fjármagn til málaflokksins í samræmi við mikilvægi hans og stærð.
  • Hvernig byggja megi upp þekkingu og færni með því að virkja rannsóknir og nýsköpun í atvinnulífi, innan skólakerfisins og hjá hinu opinbera.
  • Skilvirk og markviss samskipti einkafyrirtækja og þeirra opinberu aðila sem koma að mannvirkja- og byggingargerð.
  • Miðlun reynslu og þekkingar á skilvirkan hátt bæði til og frá byggingargeiranum, en líka milli aðila innan hans.
  • Skýrar áherslur á þróun grænna og tæknilegra lausna til að mæta þörfum framtíðarinnar.

Byggingavettvangurinn mun skila sínum tillögum í byrjun árs 2021 til félags- og barnamálaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS