6. júlí 2026
6. júlí 2026
Byggingarleyfi fyrir sjókvíar utan netlaga
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS tekur við umsóknum um byggingarleyfi fyrir sjókvíar utan netlaga frá 6. júlí 2026
- Sótt er um í nýju umsóknarviðmóti á byggingarleyfi.hms.is
- Byggingarfulltrúar sveitarfélaga veita leyfi fyrir sjókvíum innan netlaga
Samkvæmt a. lið 3. mgr. 9. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki veitir HMS byggingarleyfi fyrir mannvirki á hafi utan sveitarfélagamarka. Frá og með 6. júlí 2026 mun HMS taka á móti byggingarleyfisumsóknum fyrir sjókvíar í gegnum nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa, á slóðinni http://byggingarleyfi.hms.is. Leiðbeiningar með umsóknarviðmótinu og nánari upplýsingar um byggingarleyfi er að finna á vef HMS.
Vakin er athygli á því að ef sótt er um byggingarleyfi fyrir sjókvíar sem staðsettar yrðu fyrir innan mörk sveitarfélaga, þ.e. innan netlaga, er byggingarfulltrúi viðkomandi sveitarfélags leyfisveitandi, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga um mannvirki.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




