18. maí 2026

Byggingaráformum fjölgar hlutfallslega mikið á milli mánaða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Fjöldi íbúða í byggingu fækkar á milli ára
  • Útlit er fyrir að hátt í 3.000 nýjar íbúðir verði fullbúnar á árinu
  • Tækifæri eru til að vinna á íbúðaskuldinni

Samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu eru nú skráðar 6.177 íbúðir í byggingu víðs vegar um landið. Fjöldinn er svipaður og í síðasta mánuði en 3,5% minni en á sama tíma í fyrra. Alls eru 787 byggingaráform skráð, sem vísa til íbúða sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi en framkvæmdir eru ekki hafnar. Byggingaráformum fjölgaði talsvert á milli mánaða, eða um 41%, en þau voru 560 í apríl. Rétt er þó að halda því til haga að þessi mikla hlutfallslega aukning nemur aðeins 227 íbúðum og getur skýrst af örfáum eða jafnvel einu stóru verkefni.

Út­lit fyr­ir tæp­lega 3.000 nýj­ar full­bún­ar íbúð­ir á ár­inu

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2026 urðu 869 nýjar íbúðir fullbúnar. Það eru 7% færri íbúðir en urðu fullbúnar á sama tímabili undanfarin sex ár að meðaltali en svipaður fjöldi og árið 2022 þegar 2.540 nýjar íbúðir urðu fullbúnar á árinu. Íbúðauppbygging fer því tiltölulega hægt af stað í ár samanborið við síðastliðin ár.

Ef tekið er mið af þróun síðustu sex ára, þar sem fjöldi nýrra fullbúinna íbúða á fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur að jafnaði numið um 30% af heildarfjölda ársins, bendir staðan nú til þess að um 2.700 til 2.800 íbúðir geti orðið fullbúnar á árinu 2026. Þetta er í samræmi við niðurstöður úr síðustu marstalningu HMS á íbúðum í byggingu, en í henni var áætlað að um 2.500 til 3.000 íbúðir yrðu fullbúnar á árinu.

Þó er enn talsverð óvissa um þróunina það sem eftir lifir árs, enda geta markaðsaðstæður, sala nýrra íbúða og framvinda stærri verkefna haft veruleg áhrif á lokaniðurstöðuna.

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands fjölgaði landsmönnum um 520 á fyrsta ársfjórðungi 2026. Það er svipuð fjölgun og á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs, en alls fjölgaði íbúum um 5.080 á árinu 2025. Til samanburðar hefur landsmönnum fjölgað að meðaltali um rúmlega 6.500 á ári síðustu tíu ár. Mest varð fjölgunin árið 2022, þegar íbúum fjölgaði um rúmlega 10.000 á einu ári.

Sökum hóflegrar fólksfjölgunar á síðasta ári, sem var í takt við lágspár sveitarfélaganna, samhliða kröftugri íbúðauppbyggingu, tókst að vinna lítillega á þeirri uppsöfnuðu íbúðaskuld sem myndast hafði á undanförnum árum. HMS fjallaði nýlega um þessa þróun í samantekt sinni á árangri húsnæðisáætlana fyrir árið 2025.

HMS hefur áður fjallað um áætlaða íbúðaskuld á Íslandi, en hún safnaðist aðallega upp á árunum 2017-2019 þegar fullorðnum íbúum fjölgaði talsvert hraðar en íbúðum. HMS áætlar gróflega að íbúðaskuldin geti numið á bilinu 10 til 15 þúsund íbúðum. Tækifæri gætu því skapast á þessu ári til að vinna enn frekar á íbúðaskuldinni, haldist fólksfjölgun áfram hófleg og íbúðauppbygging kröftug.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS