19. júlí 2022
Bruni í liþíum rafhlöðum
Undanfarið hafa verið í fréttum brunar í rafhlöðum rafhlaupahjóla. Svo virðist sem bæði hafi kviknað í rafhlöðu í hleðslu og annarri sem ekki var í hleðslu. Þessar fréttir bætast við eldri fréttir af brunum og jafnvel sprengingum í rafhlöðum ýmissa tækja, s.s. farsíma, rafretta, spjaldtölva og svifbretta.
Ofangreind tæki og fleiri nota liþíum jóna rafhlöður (Li-ion) sem orkugjafa. Þessi gerð af rafhlöðu er valin til notkunar í tækjum vegna ótvíræðra kosta sem hún hefur, en hún hefur einnig nokkra ókosti og því þarf að hafa varann á við meðferð þessara tækja/rafhlaða.
Hér má sjá stutt myndband um bruna í liþíum rafhlöðum.
Um liþíum jóna rafhlöður (Li-ion).
Kostir:
- Auðvelt að hlaða við lágan straum
- Eru léttar og geyma mikla orku
- Halda orku mjög vel
- Þola margar hleðslur og afhleðslur
- Þarf ekki að afhlaða alveg fyrir hleðslu
Ókostir:
- Eru viðkvæmar fyrir höggum
- Eru viðkvæmar fyrir frosti og háum hita
- Þurfa vandaða rafrás til að stýra straumi og spennu
- Geta gefið frá sér brennanlegar lofttegundir
- Geta brunnið og jafnvel sprungið, t.d. vegna skammhlaups í rafrás
- Getur verið erfitt að slökkva eld í þeim
Nokkur ráð um hleðslu tækja með liþíum rafhlöður
- Ekki hlaða þegar allir eru sofandi eða enginn til staðar
- Notið hleðslubúnað sem fylgir tækjunum eða er sérstaklega ætlaður þeim
- Látið rafhlöðuna og hleðslutækið vera á flötu óbrennanlegu undirlagi
- Passið að ekki séu brennanleg efni nálægt
- Breiðið ekki yfir hleðslubúnaðinn eða rafhlöðuna
- Hlaðið í rými þar sem reykskynjari er til staðar
- Hafið rafhlöðuna ekki í frosti eða miklum hita við hleðslu
- Hlaðið aldrei skemmda rafhlöðu
Skemmdir á liþíumrafhlöðum geta valdið eldsvoða jafnvel þó þær sé ekki í hleðslu. Skiptið án tafar út skemmdum rafhlöðum.