21. maí 2025
17. desember 2021
Brunavarnir heimilisins
Árlega í desember fer fram umfangsmikið átak í að efla brunavarnir landsins og fjölga heimilum þar sem brunavarnir eru í lagi. En hvað þarf að vera til staðar til að brunavarnir teljist ásættanlegar?
Árlega í desember fer fram umfangsmikið átak í að efla brunavarnir landsins og fjölga heimilum þar sem brunavarnir eru í lagi. En hvað þarf að vera til staðar til að brunavarnir teljist ásættanlegar?
Helst ber þar að nefna:
- Slökkvitæki
- Reykskynjari
- Eldvarnarteppi
Undanfarið hefur brunavarnarsviði HMS borist fyrirspurnir varðandi nýja gerð af tækjum sem ætluð eru til brunavarna. Það eru tæki sem minna margt á dæmigerð slökkvitæki en eru af ýmsum litaafbrigðum og yfirleitt án leiðbeininga. Slík tæki uppfylla því ekki þær kröfur sem gerðar eru til slökkvitækja samkvæmt reglugerð og staðli þar sem meðal annars er kveðið um að handslökkvitæki skuli bera auðskildar leiðbeiningar á íslensku og vera rauð á lit. Nýju tækin flokkast því ekki sem slökkvitæki þar sem þau uppfylla ekki settar kröfur og eru því ekki tekin gild við eldvarnareftirlit og/eða öryggis- og lokaúttekt. Tækin henta því ekki þegar húsnæði er tekið í notkun eða í opinberum byggingum og öðrum stöðum á almennum vettvangi. Tækin geta hins vegar nýst sem viðbót við aðrar brunavarnir heimilisins og geta þannig stuðlað á auknu öryggi þar sem fólk þekkir til aðstæðna og veit hvar tækin eru staðsett.
Nánari upplýsingar um brunavarnir heimilisins má finna inn á forvarnarsíðu HMS www.vertueldklar.is