8. maí 2025
24. september 2021
Brunagáttin opnuð formlega
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Í tilefni af aðalfundi Félags slökkviliðsstjóra í dag opnaði HMS formlega Brunagáttina fyrir slökkviliðsstjórum og varaslökkviliðsstjórum landsins. Brunagáttin er miðlæg gátt fyrir rafræn skil slökkviliða á upplýsingum til HMS og mun gáttin reynast sem mikilvægt tæki til að auka stuðning við slökkvilið og efla brunavarnir í landinu. Þá mun gáttin einnig gera slökkviliðum og HMS kleift að samræma upplýsingar um stöðu brunavarna í landinu og verður því hægt að ná fram heildaryfirsýn yfir stöðu málaflokksins í heild sinni.

Á aðalfundinum í dag var mælaborðið opnað, sem er fyrsti áfangi Brunagáttarinnar. Markmiðið með mælaborðinu er að draga saman upplýsingar um útkallsstarfssemi slökkviliða er snýr að útköllum með greiningum niður á tegund og forgang útkalla, staðsetningu og aðgerðir slökkviliðs. Í næstu áföngum er áætlað að taka saman upplýsingar um búnað og rekstur slökkviliða, mannskap og menntun, ásamt eldvarnareftirliti. Þá er í framtíðinni stefnt að því að nýta þessi gögn við gerð rafrænna brunavarnaáætlana sem mun skila sér í betri áætlun er slökkvilið geta unnið eftir og verið almenningi aðgengilegri.
Hér má sjá yfirlit yfir öll slökkvilið í landinu: https://www.hms.is/brunavarnir/brunavarnir/slokkvilidin-i-landinu/
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS