4. júní 2025
3. júní 2025
Brunabótamat hækkar um 1,42 prósent umfram byggingarvísitölu
- HMS hefur lokið við árlegan endurútreikning sinn á brunabótamati fasteigna um allt land
- Að meðaltali hækkar brunabótamat um 1,42 prósent umfram vísitölu byggingarkostnaðar
- Launaþróun hefur mest áhrif til hækkunar vegna vinnuliða í brunabótamati
Brunabótamat fasteigna hérlendis hefur hækkað um 1,42% að meðaltali umfram þróun byggingarvísitölu vegna árlegs endurútreiknings HMS. Framkvæmd endurútreikningsins fer fram í lok maí ár hvert og tekur gildi 1. júní. Niðurstaða verðkönnunar leiddi í ljós ýmsar verðbreytingar bæði til hækkunar og lækkunar.
Brunabótamat fer eftir byggingarefnum fasteigna
Brunabótamat er óháð markaðsvirði eigna hverju sinni en byggir fyrst og fremst á verði byggingarefna fasteignanna, líkt og steypu, stáli og timbri (frumþáttaverðum) sem og mannatímum þeirra sem koma að því að byggja húsið og niðurrifskostnaði.
Brunabótamatið er uppfært í hverjum mánuði með byggingavísitölu Hagstofunnar. Þann 1. júní ár hvert endurskoðar HMS svo brunabótamatið út frá frumþáttaverðunum, 430 talsins. Með því að tengja brunabótamatið við byggingarefni er það endurreiknað með nákvæmari hætti, þar sem t.d. brunabótamat timburhúsa er byggt hlutfallslega meira á verði timburs en brunabótamat steinsteyptra húsa.
Heildar brunabótamat hækkar um rúma 239 milljarða króna milli ára sem gerir um 1,42% hækkun. Við endurútreikninginn hækka 254.742 matseiningar í mati, 37.671 standa í stað og 15.995 matseiningar lækka.
Vinnuliðir hafa mest áhrif á hækkun brunabótamats
Frá því að endurútreikningur fór síðast fram hefur brunabótamat fylgt byggingarvísitölu sem Hagstofan gefur út. Á tímabilinu hefur vísitalan hækkað brunabótamat um 3,54% svo áhrif einstakra frumþátta á brunabótamat miðast við hvernig þeir hafa fylgt þeirri hækkun. Farið var yfir nokkra af stærstu einstaka liðum í brunabótamati og kom í ljós að frumþættir er snúa að vinnu manna á verkstað hafa hækkað að meðaltali um 8,77% sem leiðir til að meðaltali um 5,18% hækkun við endurútreikning brunabótamats. Frumþættir óunnins byggingartimburs hækka milli ára um aðeins 0,66% og ná þeir þannig ekki að hækka í takt við byggingarvísitölu og er því í raun um að ræða lækkun á þeim liðum í brunabótamati um -2,93%. Þá voru frumþættir steinsteypu að hækka um 5,25% sem gerir raun hækkun þeirra liða um 1,66% í brunabótamati.
Endurskoðun brunabótamats
Frá því HMS tók við framkvæmd brunabótamats hefur verið unnið að endurskoðun málaflokksins og eru til skoðunar ýmis atriði við aðferðafræði og útreikning. Þar á meðal hvernig taka ber á breytingum í kostnaði til dæmis vegna nýrra aðferða við byggingu mannvirkja, nýrra byggingarefna og breytinga á förgunarkostnaði vegna aukinnar áherslu á flokkun úrgangs og endurnýtingu byggingarefna. Á næstu vikum verður gefinn út Vegvísir um brunabótamat þar sem farið verður yfir helstu áskoranir við framkvæmd brunabótamats og verkefnin framundan.