16. maí 2025
31. maí 2024
Brunabótamat hækkar um 0,52 prósent umfram byggingarvísitölu
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS hefur lokið við árlegan endurútreikning sinn á brunabótamati fasteigna um allt land
- Að meðaltali hækkar brunabótamatið um 0,52 prósent umfram vísitölu byggingarkostnaðar
- Helstu þættir sem hafa áhrif á endurútreikninginn er verðlækkun á ýmsum byggingarefnum á alþjóðavísu og lægra endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts
Brunabótamat fasteigna hérlendis hefur hækkað um 0,52 prósent að meðaltali umfram þróun byggingarvísitölu vegna árlegs endurútreiknings HMS. Verðlækkun á ýmsum byggingarvörum á alþjóðavísu, líkt og timbri og álplötum, vega til lækkunar á brunabótamati ýmissa fasteigna, á meðan lægra endurgreiðsluhlutfall vegur til hækkunar.
Brunabótamat fer eftir byggingarefnum fasteigna
Líkt og HMS hefur áður bent á er brunabótamatið óháð markaðsvirði eigna hverju sinni en byggir fyrst og fremst á verði byggingarefna fasteignanna, líkt og steypu, stáli og timbri (frumþáttaverðum) sem og mannatímum þeirra sem koma að því að byggja húsið og niðurrifskostnaði.
Brunabótamatið er uppfært í hverjum mánuði með byggingavísitölu Hagstofunnar. Þann 1. júní ár hvert endurskoðar HMS svo brunabótamatið út frá frumþáttaverðunum. Með því að tengja brunabótamatið við byggingarefni er það endurreiknað með nákvæmari hætti, þar sem t.d. brunabótamat timburhúsa er byggt hlutfallslega meira á verði timburs en brunabótamat steinsteyptra húsa.
Við endurútreikninginn lækkaði brunabótamat lítillega á 63 þúsund matseiningum, á meðan brunabótamatið stóð í stað á 49 þúsund þeirra og hækkaði á 187 þúsund matseiningum.
Timbur og álplötur lækka í verði sem lækkar matið
Helstu þættirnir sem höfðu áhrif á endurútreikning brunabótamats í ár voru verðlækkanir á ýmsum frumþáttaverðum á síðasta ári. Þar vegur verðlækkun á timbri þungt, en að meðaltali lækkuð frumþættir byggingatimburs um 9 prósent á milli ára, á meðan byggingarvísitalan hækkaði um tæp 6 prósent. Raunvirði byggingartimburs lækkaði því um rúm 15 prósent á milli ára. Einnig lækkaði verð á öðrum frumþáttum, til að mynda dróst raunvirði álplatna saman um rúm 18 prósent á milli ára.
Lægra endurgreiðsluhlutfall hækkar matið
Endurútreikningurinn tekur einnig til breytinga í endurgreiddum virðisaukaskatti vegna vinnu við byggingarframkvæmdir, en slíkar endurgreiðslur dragast frá brunabótamatinu. Ákvörðun stjórnvalda um að lækka hlutfall endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu fólks við íbúðarhúsnæði úr 60 prósentum niður í 35 prósent hafði því áhrif til hækkunar á brunabótamati.
Lækkun endurgreiðsluhlutfallsins leiddi til tæplega tveggja prósenta hækkunar á brunabótamati íbúðarhúsnæðis, samkvæmt endurútreikningum HMS.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS