21. maí 2025
5. nóvember 2021
Brimborg innkallar Volvo XC60 og XC90
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um að innkalla þurfi 7 Volvo XC60 og XC90 bifreiðar af árgerð 2020. Um er að ræða bifreiðar með dísel vélar. Ástæða innköllunarinnar rannsóknir Volvo hafa leitt í ljós að túrbínur geta gefið sig við vissar aðstæður. Bréf verða send til eigenda umræddra bifreiða um leið og varahlutir berast til landsins.Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.
Um er að ræða Safety Gate tilkynningu sem er í gildi á EU / EES svæðinu. Í þessum hlekk eru nánari upplýsingar um þessa innköllun: https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10004622