16. maí 2025
9. ágúst 2022
Breytt regluverk um steinsteypu
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Tillögurnar voru unnar með þátttöku fremstu sérfræðinga landsins í steypugerð og notkun. Helstu breytingar í tillögunum felast í sveigjanlegri og markmiðsbundnum ákvæðum sem munu opna fyrir grænar lausnir en með óbreyttri áherslu á öryggi og gæði.
Breytt regluverk um steinsteypu hefur tekið gildi. Tillögurnar voru unnar með þátttöku fremstu sérfræðinga landsins í steypugerð og notkun. Helstu breytingar í tillögunum felast í sveigjanlegri og markmiðsbundnum ákvæðum sem munu opna fyrir grænar lausnir en með óbreyttri áherslu á öryggi og gæði. Breytingarnar skapa m.a. hvata til að nota fjölbreyttari samsetningar í steypuíblöndun, nýta mismunandi blöndur fyrir ólíkar aðstæður og endurvinna steinefni. Markmiðið er að lágmarka umhverfisáhrif steypunnar og tryggja endingu hennar með tilheyrandi ávinningi. Þannig verður hægt að lækka kolefnisspor íslenskra bygginga en byggingarefnin sjálf bera ábyrgð á 45% kolefnissporsins samkvæmt nýlegri rannsókn stofnunarinnar.
Þá var uppsetning rannsóknarmastra bætt við þær framkvæmdir sem eru undanþegnar byggingarleyfi en kveðið á um að slíkar framkvæmdir eigi að tilkynna leyfisveitanda. Var það gert í þeim tilgangi að eyða réttaróvissu og misræmi í framkvæmd.
Upphaflegar tillögur voru unnar í samstarfi við sérfræðingana Eyþór Rafn Þórhallsson dósent iðn- og tæknifræðideildar Háskólans í Reykjavík, Einar Einarsson, framkvæmdastjóra gæða- og umhverfissviðs Hornsteins og Guðbjart Einarsson, sviðsstjóra bygginga hjá Ríkiseignum.
Í framhaldi af því var settur á stofn samráðshópur fagaðila um tillögurnar. Í þeim hópi áttu sæti Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök iðnaðarins, Verkfræðingafélag Íslands, Arkitektafélag Íslands, Grænni byggð, Verkfræðistofnun Háskóla Íslands og Mannvit.
Við undirbúning tillagna var litið til gildandi Evrópustaðla og framkvæmdar á Norðurlöndunum. Samráðshópurinn horfði einnig til skýrslu OECD um samkeppnismat á regluverki íslensks byggingariðnaðar og er markmiðsnálgun beitt með setningu meginreglna og viðmiðunarreglna í stað forskriftarákvæða. Er sú aðferðarfræði talin veita hönnuðum og framleiðendum fleiri möguleika án þess að kröfum um öryggi sé fórnað. Samhliða birtingu þeirra í samráðsgátt stjórnvalda voru reglurnar aukinheldur kynntar á fundi innviðaráðuneytisins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og var þeim vel tekið.
Að mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar má áætla að breytingar á regluverki geti haft þau áhrif að um 20-30% samdráttur verði á losun gróðurhúsalofttegunda vegna notkunar á steypu og um 6% samdráttur á losun vegna byggingariðnaðarins í heild.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS