8. júlí 2026

Bætt brunatjón árið 2025 nam 3,6 milljörðum króna

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Bætt brunatjón árið 2025 nam 3,6 milljörðum króna, sem er 23% lækkun frá árinu 2024.
  • Atvinnuhúsnæði bar hæstan kostnað, með brunatjón upp á 2,1 milljarð króna, þar sem einn stórbruni hafði veruleg áhrif á heildarniðurstöðuna.
  • Tveir létust í bruna árið 2025, sem undirstrikar mikilvægi brunavarna og forvarna til að vernda líf og eignir.

Heildarupphæð bættra brunatjóna árið 2025 nam 3,6 milljörðum króna og lækkaði um 23 prósent frá árinu 2024. Tjón í atvinnuhúsnæði námu 2,1 milljarði króna og hafði einn stór atburður veruleg áhrif á heildarniðurstöðuna, enda nam hann um 33 prósent af bættum tjónum ársins.

Árlega tekur HMS saman yfirlit yfir eignatjón vegna eldsvoða er byggir á gögnum frá tryggingafélögum. Niðurstöður samantektarinnar má sjá á mynd hér að neðan, sem sýnir heildarumfang bættra brunatjóna eftir árum.

Brunatjón – Tjónupphæð 1981-2025

Tjónupphæð er í milljónum króna og miðast við byggingarvísitölu í janúar 2026

Fjöldi til­kynntra tjóna

Fjöldi bættra brunatjóna var lægri árið 2025 en undanfarin ár og stórbrunar færri. Alls voru tilkynnt 708 brunatjón, þar af 293 í atvinnuhúsnæði.

Rétt er að hafa í huga að fjöldi tilkynntra tjóna endurspeglar ekki endilega fjölda brunatilvika. Í stórum brunum geta margir aðilar verið með tryggingar í sama húsnæði og því myndast margar tjónatilkynningar vegna eins og sama atburðar. Í einu tilviki bárust til að mynda um 200 tjónatilkynningar vegna sama brunans.

Tilkynnt tjón í íbúðarhúsnæði og á heimilum voru alls 343, en 72 tjón voru flokkuð sem óskilgreind.

Upp­hæð tjóna eft­ir teg­und bygg­inga

Skipting bættra brunatjóna árið 2025 eftir tegund bygginga er sýnd hér að neðan. Þar kemur fram að tjón í atvinnuhúsnæði vega langþyngst, eða alls 2,1 milljarður króna.

Á grafinu hér að neðan má sjá að meðaltals kostnaður af tilkynntu tjóni í atvinnuhúsnæði er rúmlega tvisvar sinnum dýrari en í íbúðarhúsnæði.

Tvö manns­lát urðu í bruna árið 2025

Tveir létust í bruna á Íslandi árið 2025. Báðir létust í sama eldsvoðanum sem rekja mátti til íkveikju í fjölbýlishúsi. Bruninn var einn alvarlegasti eldsvoði ársins með tilliti til manntjóns og undirstrikar þá miklu hættu sem skapast þegar eldur er borinn að í íbúðarhúsnæði, þar sem líf og heilsa íbúa getur verið í bráðri hættu.

Mikilvægt er að huga að brunavörnum á heimilum og í nærumhverfi til að draga úr líkum á eldsvoða og takmarka afleiðingar hans. HMS sinnir öflugu fræðslu- og forvarnarstarfi á sviði brunavarna. Á vefnum Vertu eldklár má nálgast fjölbreytt fræðslu- og forvarnarefni um brunavarnir á heimilum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS