7. desember 2023
14. nóvember 2023
Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar á suðurlandi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Miðvikudaginn 15. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum. Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi kl. 11:30 og er opinn öllum. Að fundinum standa ýmsir aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða SASS, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkir og Samtök iðnaðarins.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.
Dagskrá
Áskoranir og tækifæri á Suðurlandi
Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS
Staða íbúðauppbyggingar
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
Stafræn byggingarleyfi
Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
Lánastarfsemi Byggðastofnunar
Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar
Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Lóa Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá HVIN
Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu
Bjartmar Steinn Guðjónsson, viðskiptastjóri hjá SI
Húsið opnar kl. 11:15 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri er Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS