15. maí 2025
15. febrúar 2021
Árstíðabundin sveifla ástæða minni umsvifa á íbúðamarkaði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Útgefnir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru 866 í janúar sem er um 28% minna en í desember. Hér er um bráðabirgða tölur að ræða en þær ná aðeins utan um samninga sem búið er að þinglýsa og því gæti fjöldinn aukist eftir því sem fleiri samningum er þinglýst.
Útgefnir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru 866 í janúar sem er um 28% minna en í desember. Hér er um bráðabirgða tölur að ræða en þær ná aðeins utan um samninga sem búið er að þinglýsa og því gæti fjöldinn aukist eftir því sem fleiri samningum er þinglýst.
Sé fjöldi kaupsamninga skoðaður eftir því hvaða mánuð árs um er að ræða kemur bersýnilega í ljós að fækkunin er fyrst og fremst komin til vegna árstíðabundinna sveifla, enda hefur fjöldi kaupsamninga aldrei verið meiri í janúar mánuði en nú. Þannig voru 20% fleiri útgefnir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði í janúar 2021 miðað við janúar 2020 en í desember 2020 voru kaupsamningar 32% fleiri en í desember 2019. Í næsta mánuði, þegar flestum kaupsamningum í janúar hefur verið þinglýst, kemur í ljós hvort að kaupsamningum hafi fækkað meira en búast mætti við eingöngu út frá árstíðarsveiflum. Á myndinni hér að neðan sést fjöldi kaupsamninga út frá mánuðum og sést þar að seinast liðin janúar var metmánuður.
Velta kaupsamninga dróst meira saman á milli mánaða en fjöldinn, eða um 27%. Hins vegar var ekki jafn mikill munur á 12 mánaða breytingu í veltunni en hún fór úr 31,7% í desember í 26,5% í janúar. Á myndinni sést að eins og með fjölda kaupsamninga þá var veltan í janúar í methæðum.
Sé fjöldi útgefinna kaupsamninga borinn saman við fjölda íbúða tekna úr birtingu[1] má sjá að óvenju mikill munur er þar á. Mögulega bendir það til þess að enn eigi eftir að þinglýsa nokkuð af íbúðaviðskiptum. Hins vegar eru íbúðir stundum teknar úr birtingu án þess að þær hafi verið seldar og mögulega hefur átt sér stað einhvers konar hreinsun á fasteignir.is nú eftir áramót.
[1] Skammtímavísir hagdeildar þar sem fjöldi íbúða teknar úr birtingu af vefnum fasteignir.is er tekið saman. Fjöldinn hefur mikla fylgni við fjölda kaupsamninga og gefur til kynna hver umsvifin á fasteignamarkaði er nánast í rauntíma.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS