31. janúar 2025

Ársskýrsla markaðseftirlits raffanga fyrir árið 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi. Stofnunin aflar á skipulegan hátt upplýsinga um rafföng á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum. Faggilt skoðunarstofa, BSI á Íslandi ehf, annast í umboði HMS framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók stofnunarinnar.

BSI hefur nú birt ársskýrslu fyrir markaðseftirlit raffanga á árinu 2024. Samkvæmt skýrslunni fór BSI samtals í 208 heimsóknir til söluaðila raffanga á árinu, heimsóknirnar fela í sér lauslega skoðun á sem flestum rafföngum á hverjum stað með það að markmiði að sigta út rafföng sem ekki uppfylla öryggiskröfur, ákvæði um rafsegultruflanir eða formkröfur. Alls „skimaði“ BSI 5.304 rafföng í heimsóknum sínum og skoðaði 37 rafföng nánar vegna gruns um að þau uppfylltu ekki kröfur. Af skimuðum rafföngum flokkuðust flest sem lýsingarbúnaður (1.552), raflagnabúnaður (1.242), ýmiss konar heimilistæki (939) og spennugjafar og hleðslutæki (596).

HMS setur sölubönn á rafföng sem alvarlegar athugasemdir eru gerðar við, ekkert slíkt var sett á árinu 2024 en send voru 29 skrifleg tilmæli til söluaðila um úrbætur á rafföngum sem minniháttar athugasemdir voru gerðar við. Að auki aðstoðaði stofnunin ábyrgðaraðila varðandi úrbætur og innkallanir á rafföngum.

Ársskýrsluna má nálgast með því að smella hér.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS